Vesturlandsdeildin
Vesturlandsdeildin - Lokamót.
Einnig viljum við biðja þau lið sem tryggðu sér þáttökurétt að staðfesta þáttöku. Ef knapar hafa áhuga á að vera með en eru ekki komnnir í lið þá endilega hafa samband við stjórn sem mun þá koma þeim í samband við lið sem vantar knapa.
Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni í hestaíþróttum sem fram fer í Faxaborg, Borgarnesi. 7 lið etja kappi sem saman standa af fjórum til fimm einstaklingum.
Hvert lið sendir þrjá keppendur til leiks í hverja grein og telja allir til stiga í liðakeppninni en 10 efstu hljóta stig í einstaklingskeppninni.
Liðin ráða því sjálf hvort þau tefla fram fjórum eða fimm liðsmönnum í deildinni.
Keppnisgreinar á komandi tímabili verða Eftirfarandi. Í stafrófsröð:
Fimmgangur
Fjórgangur
Flugskeið
Gæðingafimi
Slaktaumatölt
Tölt
Deildin er opin öllum til þátttöku óháð búsetu.
Umsóknir berist á netfangið [email protected] í síðasta lagi 15. Nóvember n.k.
Með umsókninni þurfa að fylgja upplýsinar um alla liðsmenn og tilnefna skal einn þeirra sem liðsstjóra.
Stjórn Vesturlandsdeildarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands