Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum – Lið Skáney / Fagerlund.
Liðstjórinn er Randi Holaker, hún hefur tekið þátt í deildini frá byrjun. Hún er menntaður tamningamaður og reiðkennari auk þess að vera gæðingadómari, hún starfar heima á Skáney auk þess að ferðast töluvert út fyrir landssteinanna til að sinna kennslu. Randi hefur átt góðu gengi að fagna í Vesturlandsdeildinni síðustu ár.
–
Haukur Bjarnason, hefur verið þátttakandi í deildinni frá byrjun oft með ágætum árangri í flestum greinum. Haukur er eins og Randi menntaður tamningamaður og reiðkennari, auk þess að vera með íþrótta og gæðingadómara réttindi. Starfa þau saman heima á Skáney við tamningar, þjálfun og reiðkennslu en þau hafa byggt sér upp glæsilega aðstöðu á undanförnum árum.
–
Berglind Ragnarsdóttir, býr á Laugavöllum í Reykholtsdal með dætrum sínum og rekur sitt eigið fyrirtæki sem sér um bókhald og uppgjör. Hefur orðið heimsmeistari og nokkrum sinnum íslandsmeistari. Hún hefur meðal annars unnið slaktaumatölt í Vesturlansdeildinni og kemur sterk inn í vetur.
–
Fredrica Fagerlund, finnsk að uppruna en hefur búið og starfað á Íslandi undanfarin 10 ár. Hún er reiðkennari og tamningamaður að mennt og sinnir tamningum og reiðkennslu á félagssvæði Harðar í Mosfellsbæ, auk þess sem hún og maðurinn hennar reka reiðskóla á sumrin. Fredrica hefur verið iðin á keppnisvellinum undanfarin ár og árið 2019 tók hún þátt í Vesturlandsdeildinni í fyrsta skiptið og hampaði þar 3. Sætið í einstaklingskeppninni, en hún var í úrslitum í öllum greinum og vann gæðingafimi á hestinum Storm frá Yztafelli.
–
Elvar Logi Friðriksson, Skagfiskur Húnvetningur sem starfar við tamningar. Elvar hefur náð góðum árangri í Meistaradeild KS en hann reið úrslit í gæðingafimi og B- úrslit í fjórgangi árið 2019. Elvar var stigahæsti knapinn í Húnvetnsku deildinni 2019 og hefur margoft verið stigahæstur í Húnvetnsku liðakeppninni. Elvar var með í Vesturlandsdeildinni 2018 og 2020 og mun koma sterkur inn aftur núna í ár.
Dagskrá Vesturlandsdeildarinnar árið 2021 
–
–
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH