Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum Vesturlandsdeildin – lið Slippfélagsins og Kerckhaert skeifna

  • 17. febrúar 2021
  • Fréttir

Þá er það síðasta en þó alls ekki sísta liðið sem við viljum kynna fyrir ykkur í ár en það er lið Stelpnanna í Slippfélaginu og Kerckhaert skeifna. Þær tóku liðaskjöldin í eina mótinu sem haldið var í fyrra, fjórgangnum, og því spennandi að sjá hvernig þeim vegnar þetta árið!

Liðstjórinn er Hrefna María Ómarsdóttir, hestakona og menntaður reiðkennari frá Hólaskóla. Hrefna er viðskiptafræðingur og starfar á daginn sem markaðsstjóri Slippfélagsins málningarverksmiðju. Eftir vinnu ríður hún út öllum sínum Álfhólaættuðu gæðingum á félagssvæði Fáks í Víðidal. Hrefna María hefur staðið sig vel um árabil í keppnum og sýningum hrossa, á allskonar titla sem hún gæti stært sig á en engin nennir að lesa um en hún hefur verið liðstjóri og tekið þátt í Vesturlandsdeildinni síðustu 3 ár.

Þórdís Erla Gunnarsdóttir, reiðkennari, tamningakona og hrossaræktandi að Auðsholtshjáleigu Ölfusi. Þórdís eða Dísa skvísa eins og hún er kölluð starfar við tamningar og þjálfun að Grænhóli Ölfusi og reiðkennslu hér heima og erlendis. Þórdís hefur staðið sig vel í keppni og sýningum og verið keppandi í Meistaradeildinni með góðum árangri. Hún er með fullt hesthús af eðal hrossum og það verður spennandi að sjá hvaða stjörnu hún dregur fram setur á kerruna og sýnir okkur þetta árið. Helstu áskorannir liðsins er að hemja öfund Hrefnu Maríu á öllum stóru svörtu fasmiklu klárhestunum sem virðast vaxa upp úr hólnum á Grænhól.

Ylfa Guðrún Svafarsdóttir er upphaflegur liðsmaður í liði Stelpnanna og eru það gleðitíðindi að hún snúi aftur í deildina. Hún er fædd og uppalin í Kópavogi. Ylfa stundar nám við Hólaskóla og þjálfar þar í götum alla daga. Þrátt fyrir ungan aldur þá á hún langan feril á keppnisbrautinni og marga titla. Ylfa er margfaldur Íslandsmeistari og Reykjavíkurmeistari. Ylfa keppti fyrir Íslandshönd á síðustu heimsleikum og er hún í landsliðshópi. Hún er iðin og flink eins og hún á kyn til. Hesthúsið er er fullt af reynsluboltum og ungum stjörnum sem gaman verður að sjá í vetur. Ylfa stóð sig gríðarlega vel í deildinni og klárlega liðsmaðurinn sem er til alls líkleg.

Iðunn Svansdóttir er útskrifuð sem tamningamaður og þjálfari frá Hólaskóla. Iðunn býr í Borgarnesi og stundar útreiðar þar. Iðunn hefur áður verið með í deildinni og staðið sig vel og reið t.d. úrslit í fjórgang og fimmgangi á Sigurrós frá Söðulsholti og Nökkva frá Hrísakoti. Iðunn stefnir á að nota þau aftur i deildinni ár. Iðunn er með breitt hæfileika svið, hún er ekki bara super flink á hestbaki og mikill tamningamaður þá er hún með næmt auga fyrir ljósmyndum, myndir hennar eru gullfallegar. Hún afar slungin við að finna góð söluhross fyrir samstarfsfólk sitt erlendis frá og svo hefur henni heppnast vel með að gera dætur sínar að mögnuðum hestakonum svo eftir því er tekið.

Leynivopn okkar stelpnanna er hann Arnar Máni Sigurjónsson. Hann er ungur að árum aðeins 18 ára gamall. Hann stundar nám við Verzlunarskóla Íslands sem er hálf furðulegt þar sem hann eyðir öllum stundum upp í Víðidal við útreiðar. Þessi kurteisi og flinki ungi hestamaður á afrekaskrá sem kemst ekki fyrir í svona pistli en til að stikla á stóru hefur hann orðið 4 sinnum Íslandsmeistari, örugglega tæplega hundraðsinnum Reykjavíkurmeistari og er í vandræðum með að koma verðlauna safni sínu fyrir í herberginu sínu. Lukkulega þá var fjölskyldan að festa kaup í stærsta hesthúsi Víðidalsins og fer vel um alla gripi þar. Húsið er fullt af spennandi hrossum sem gaman verður að sjá Arnar mæta með. Arnar er metnaðarfullur og er alltaf til í að fara á eitt hross í viðbót þó klukkan sé orðin allt of margt, Arnar er nefnilega klár og veit að það eru þetta auka sem maður leggur á sig sem skilar manni áfram.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link