Vesturlandssýning

  • 27. febrúar 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Vestlenskir gæðingar, ræktunarbú o.fl.

Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambandi Vesturlands hafa ákveðið að efna til Vesturlandssýningar í reiðhöllinni Faxaborg Borgarnesi, laugardaginn 29. mars n. k. Þetta er fjórða árið í röð sem Vesturlandssýningin er haldin í Faxaborg og mun allt kapp verða lagt á að sýningin í ár verði sem glæsilegust.
Á sýningunni munu koma fram vestlenskir gæðingar og dæmi um sýningaratriði eru sýningar hjá börnum og unglingum, ásamt fimmgangs og fjórgangshestum, skeiði, tölti, kynbótahrossum og ræktunarbúum ásamt mörgum fleiri atriðum með góðum gestum. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.

Þeir sem hafa ábendingar um atriði eða hross, sem eiga erindi á sýninguna geta komið þeim á framfæri við eftirfarandi aðila:
Arnar Ásbjörnsson, [email protected], gsm: 841-8887
Hlöðver Hlöðversson, [email protected], gsm: 661-7308
Halldór Sigurðsson, gsm: 892-3044
Valdimar Magnús Ólafsson, [email protected], gsm: 661-3199

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link