Vesturlandssýningin: myndir
Mikil gróska er í hestamennsku á Vesturlandi en fulltrúar hestamannafélaga þar og Hrossaræktarsambands Vesturlands efndu til sýningar í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Vesturlandssýning hefur verið haldin í þrjú ár í röð við mikinn fögnuð vestlendinga.
Margur gæðingurinn steig fagurt hýruspor í fjölbreyttum atriðum. Reiðmenn voru á öllum aldri, alveg frá efnilegu ungviði upp í landsfræga knapa sem sýndu fágaða glæsireið. Karlknaparnir voru margir hverjir óvenju virðulegir, en það má þakka einmánuðinum sem tileinkaður er andlitsmottum. Einnig mátti sjá fimmgangs og fjórgangshesta, skeið, kynbótahross, ræktunarbú, stóðhesta og fleira.
Meðal margra góðra atriða mátti sjá vestlenskar valkyrjur sem riðu þokkafullar vel útfærða skrautreið, Kná frá Nýja-Bæ vakti athygli fyrir glæsileika, Krás frá Arnbjörgum fór mikinn á skeiði, Lundabræður sýndu sig og sönnuðu, með nýjustu stjörnunni frá Lundum Abraham Vilmundarsyni ásamt móður þeirra Auðnu frá Höfða sem heilsaði hneggjandi upp á áhorfendur. Stóðhestarnir Þeyr frá Holtsmúla og Víkingur frá Ási heilluðu einnig. Lokaatriði sýningarinnar var ekki af verri endanum, því Óskasteinn sjálfur frá Íbishóli og Magnús Bragi Magnússon mættu á svæðið upplýstir frægðarljósi.
HÉR MÁ SJÁ MYNDIR FRÁ SÝNINGUNNI
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH