Vetrarleikar hestamannafélagsins Hrings
Laugardaginn 11. febrúar blæs Hestamannafélagið Hringur til opins Vetrarmóts/Ísmóts.
Ef aðstæður leyfa verður skoðað að hafa mótið á Hrísatjörn en stefnt er að halda mótið á Hringsvellinum á beinu brautinni. Keppt verður í tölti opnum flokki og 100m skeiði.
Skráning skal fara fram með tölvupósti á netfangið [email protected] fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 9. febrúar.
Skráningargjald er 2500 kr. á fyrstu skráningu og 2000 kr. á skráningar eftir það. Ath. að tveir dómarar munu dæma saman í Töltinu og tímataka í skeiði verður rafræn.
Skráningargjald þarf að leggja inná reikning hestamannafélagsins kt. 540890-1029, reikn: 0177-26-175 tilvísun „ísmót“ kvittun sendist á [email protected]
Skráning telst gild þegar greiðsla hefur borist.Mótið hefst kl 11:00 og skulu knapar vera mættir 10:30
kveðja. Mótanefnd Hrings
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH