Vetrarmót Loga og Trausta

  • 11. mars 2013
  • Fréttir
Vetrarmót Loga og Trausta

“Annað vetrarmót Loga og Trausta  verður haldið í Hrísholti laugardaginn 16. mars kl: 14.00 en seinasta mótið verður haldið 13. apríl . Keppt verður í barna-unglinga- fullorðins og unghrossaflokkum.  ATH. breytta röð keppnisgreina þ.e. fyrst á dagskrá er unghrossaflokkur síðann barnaflokkur, unglingaflokkur og loks fullorðinsflokkur.

Þær reglur gilda í unghrossaflokki að knapi getur mætt með nýtt hross á hvert mót, en heldur samt sýnum stigum þ.e. knapinn safnar stigum óháð hrossum. Unghrossaflokkur er ætlaður hrossum sem verða  5 og 6 vetra á keppnis árinu.
Vert er að minna á þær reglur sem gilda um keppnisrétt knapa og hrossa á vetramótum félagsins.
Nánar er hægt að lesa um reglur félagsins á heimasíðu Loga og Trausta
Vetrarmótanefnd vill minna keppendur á að mæta tímanlega til að skrá sig,“ segir í tilkynningu frá nefndinni
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link