Vetrarmót Smára

  • 7. febrúar 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Muna ekki allir eftir 1. vetrarmótinu laugardaginn 13 febrúar?

Mótið verður haldið í Torfdal á keppnissvæði félagssins eins og fyrri ár. Það mun fara eftir veðri og vallarfærð hvort að mótið verði haldið úti, eða inni í höll. Pollarnir munu ríða inni.

Keppt verður í sömu flokkum og síðustu ár:

Pollaflokk
Unghrossaflokk (hross fædd 2011 og 2012)
Barnaflokk
Unglingaflokk
Ungmennaflokk
II Flokk
I Flokk

Mótið byrjar kl 14:00 á Pollaflokk, tekið er við skráningum inni í höll frá kl 13:30

Skráningargjald er 1500kr, frítt fyrir börn og polla.

Við minnum á að það er knapi sem safnar stigum sama á hvaða hrossi hann mætir í hvert skipti. Svo lengi sem hrossið sé í eigu félagsmanns.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link