Vetrarmót Smára
“Annað Vetrarmót Smára fór fram laugardaginn 16. mars að Flúðum. Sólin vermdi knapa, hesta og áhorfendur en þó var svolítið kalt.
Pollaflokkur hóf keppnina inni í reiðhöllinni en þar tóku Anton Óskar Ólafsson á Brúnku frá Brjánsstöðum, Jón Valgeir Ragnarsson á Mosa frá Reykjaflöt og Valdimar Örn Ingvarsson á Gusa frá Borgarholti þátt og stóðu sig með prýði.
Þá var komið að því að fara út í sólina því unghrossaflokkurinn var næstur á dagskrá en unghrossin eru fædd 2008 og 2009. Eftir þau tók hver flokkurinn við af öðrum. Úrslit urðu eftirfarandi:
Unghrossaflokkur:
Hannes Gestsson og Rjóð frá Kálfhóli II
Berglind Ágústsdóttir og Sólrún frá Efra-Langholti
Barnaflokkur:
Aron Ernir Ragnarsson og Þyrnir frá Garði
Halldór Fjalar Helgason og Þokki frá Hvammi I
Hekla Salóme Magnúsdóttir og Hróðný frá Blesastöðum
Þorvaldur Logi Einarsson og Eldur frá Miðfelli 2A
Einar Ágúst Ingvarsson og Prins frá Fjalli
Unglingaflokkur:
Hrafnhildur Magnúsdóttir og Eyvör frá Blesastöðum
Björgvin Ólafsson og Óður frá Kjarnholtum 1
Guðjón Hrafn Sigurðsson og Sóley frá Syðri-Hofdölum
Björgvin Viðar Jónsson og Spá frá Álftarósi
Helgi Valdimar Sigurðsson og Hending frá Skollagróf
Ungmennaflokkur:
Sigurbjörg Bára Björnsdóttir og Silfurdís frá Vorsabæ II
Karen Hauksdóttir og Hrafnkatla frá Blesastöðum
Eiríkur Arnarsson og Móhildur frá Blesastöðum
Guðjón Örn Sigurðsson og Gola frá Skollagróf
2. flokkur fullorðina:
Einar Einarsson og Rökkva frá Reykjum
Valgeir Jónsson og Strákur frá Þverspyrnu
Svala Bjarnadóttir og Kvistur frá Fjalli
Jón Bjarnason og Kjarkur frá Skipholti
Haukur Már Hilmarsson og Glanni frá Steinum
1. flokkur fullorðina:
Bragi Gunnarsson og Bragur frá Túnsbergi
Berglind Ágústsdóttir og Reisn frá Blesastöðum
Gestur Þórðarson og Garpur frá Kálfhóli II
Ragnar S. Geirsson og Þoka frá Reyðará
Hannes Gestsson og Nös frá Kálfhóli II
Gunnar Jónsson og Jarl frá Skeiðháholti III
Mótanefnd vill þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi og störfum á mótinu, dómurum og þá sérstaklega knöpum og hestum sem skemmtu öllum svo vel.
Við minnum á þriðja vetrarmót Smára sem haldið verður 20. apríl,“ segir í tilkynningnu frá aðstandendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH