Vetrarþjálfun og járning
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands vekur athygli á tveimur áhugaverðum námskeiðum sem í boði eru á Hvanneyri nú í desember og janúar.
Undirbúningur vetrarþjálfunar með Agli Þórarinssyni
Egill Þórarinsson er einn af reyndustu reiðkennurum landsins. Hann á að baki langan og farsælan feril að baki í reiðkennslu, þjálfun, sýningu kynbótahrossa og keppnishrossa.
Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem vilja undirbúa sig vel fyrir komandi þjálfunartímabil. Farið verður yfir atriði sem vert er að hafa í huga í byrjun vetrar, atriði sem snúa bæði að hesti og knapa. Nú er rétti tíminn til að vinna í því sem krefst nákvæmni og þolinmæði; leiðrétta taumsamband og höfuðburð, lengja og teygja á yfirlínu og styrkja bak. Námskeiðið verður einstaklingsmiðað og leitast verður eftir að meta hvern knapa og hest og leggja áherslu á að byggja og bæta grunninn í þjálfuninni sem síðan verður hægt að byggja áframhaldandi vetrarþjálfun á.
Kennari: Egill Þórarinsson, reiðkennari og sýninga- og keppnisknapi.
Tímar: lau. 8. des. kl 9:30-19:00 (einkatímar) og sun. 9. des. Kl 9:00-17:00 (sýnikennsla, hópatímar, o.fl.) í Hestamiðstöð Lbhí á Miðfossum. Með fyrirvara um breytingar.
Verð: 26.500.- (kennsla, aðstaða fyrri hross, hádegissnarl á sunnudegi). Skráningarfrestur er til 3. des.
Skráningar: [email protected] eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 7.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið [email protected]
Járningar og hófhirða
Einnig er búið að opna fyrir skráningar á námskeiðið Járningar og hófhirða sem fer fram í janúar.
Námskeiðið er einkum ætlað bændum, hrossaræktendum og áhugamönnum.
Fjallað verður um undirstöðuatriði við hófhirðingu og járningu hesta. Kennd verður hófhirðing, tálgun og járningar. Rætt verður um áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð hófsins og hlutverk. Námskeiðið er að mestu verkleg kennsla og koma þátttakendur því með eigin járningaáhöld og hest/hesta. Hámarksfjöldi þátttakenda 10.
Kennari: Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi á Oddsstöðum.
Tími: Lau. 12. jan., kl. 10:00-18:00 og sun. 13. jan., kl. 9:00-16:00 (19,5 kennslustundir) í Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum.
Verð: 22.900kr. (kennsla, gögn, aðstaða fyrir hest og veitingar).
Skráningar: [email protected] eða s: 433 5000.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5200 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590.
Minnum á Starfsmenntasjóð bænda – www.bondi.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH