Við berum ábyrgð

  • 3. september 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Hugleiðingar formanns FT í lok keppnistímabils og byrjað er að hausta.

„Vorið og sumarið er „blómatímabil“ hestamennskunnar. Keppnir, hestaferðir, bjart alla nóttina og erfitt að fara heim að sofa. Hestafjölskyldur og vinir verða enn samrýmdari en nokkru sinn fyrr. Þegar keppnistímabilið er í fullum gangi er spennandi að fylgjast með knöpum undirbúa sig á völlum hestamannafélagana.      Metnaður, áhugi og eftisvænting í hverju hjarta. Margir að fá aðstoð og álit þjálfara, kennara og dómara.

 Hef sjálf kennt og þjálfað knapa fyrir keppni, er það svakalega gefandi og skemmtilegt, jafnvel meira spennandi en að keppa sjálf. Þó er eitt „vandamál“ sem yngri kynnslóðin glímir við….. foreldravandamálið!

Foreldrar eiga það til í hita leiksins ef frammistaða stendur ekki undir væntingu þeirra, að kenna dómurum og/eða þjálfurum um, tala illa um þá og jafnvel að tala illa um keppinauta barna sinna. Því biðla ég til foreldra: Kæru foreldrar/aðstandendur, þið sem VELJIÐ að hugsa og tala á þann hátt, passið að láta börnin ykkar ekki heyra til ykkar( neikvætt viðhorf er smitandi og vont fyrir óþroskaðar persónur).  Leyfum þeim að njóta gleðinnar og ástríðunnar sem hestaíþróttinni fylgir.    Einnig hef ég tekið eftir því í áhorfendabrekkunni,  að fólk er oft svo óheppið að falla í þá gryfju að taka bara eftir því sem illa fer, hneykslast á dómurum og keppendum(hef fallið í þá gryfju sjálf).   Hvernig væri að við öll tækjum meðvitaða ákvörðun um að taka sérstaklega vel eftir öllu jákvæðu sem vel gengur og fegurðinni sem íþróttinni okkar fylgir?  Rýna svo til gagns með það sem miður fer eða má bæta:) 
Ég held að engin knapi taki ákvörðun um að klúðra sinni sýningu. Íþróttin okkar er mikil áskorun,dans tveggja og í raun list, hesturinn er svo næmur að hann skynjar minnstu spennu, óöryggi eða stress í knapanum, því segi ég við aðstandendur, verum nærgætin og uppbyggileg við okkar knapa. Einnig held ég að engin dómari fari á fætur að morgni og ákveði að hann ættli að vera „út úr korti“ í dómstörfum þetta mótið. Það er gríðarleg áskorun, undirbúningur og einbeiting að vera dómari. Held að allir séu að reyna að gera sitt allra besta. En örugglega getum við(dómarar) lært af meiri dýpt og undirbúið okkur enn betur.
Það hefur verið rannsakað að ef við erum góð við aðra, menn og dýr, hlúum að þeim sem við elskum, óskum öðrum góðs gengis, þá losna gleðiboðefni í heilanum okkar.  Þannig að mestu vellíðunina fáum við sjálf.  Okkur gengur sjálfum betur að ná okkar markmiðum þegar við erum góð og jákvæð í garð annara.

Einnig hefur verið rannsakað að börn sem alast upp innan um dýr verða blíðari, umhyggjusamari og ábyrgari en ella.  Við erum svo heppin sem höfum tækifæri til að stunda hestamennsku með öllu tilheyrandi.  Út frá rannsóknum mætti ætla að hestafólk sé  glaðara, skemmtilegra og betra við hvort annað en gengur og gerist. 

  En erum við það?  

Hestamennskan er svo einstök, hún spyr ekki um stétt eða stöðu, aldursbil verður að engu, við erum öll í lopapeysu, reiðbuxum og tölum sama tungumálið (þefum hvert annað uppi í ¨leiðinlegum“ veislum og tölum um hesta.  Hestamennskan er svo stórkostlega fjölbreytt, allir geta stundað hana á sinn hátt og margar leiðir eru að sama markmiði.

Sumir  vilja bara komast út í ferska loftið, tengjast náttúrunni og/eða í félagsskapinn sem er stór partur, þetta er allt jafn mikilvægt.   Eins eru í hverju góðu félagi tengdu hestamennskunni, allir félagar jafn mikilvægir.  Það er nauðsynlegt að treysta fólki fyrir sínum verkefnum og leyfa því að blómstra í sinni nefnd. Skynsamlegt er að nota haustið vel til að undirbúa næsta tímabil, hvort sem er til að bæta dómstörf, mótahald, hestatengda viðburði, sína eigin reiðmennsku eða/og bæta samskipti innan hestamennskunnar. Stöndum saman, hvetjum og hrósum hvert öðru, tölum fallega um og við hvert annað!  Við höfum mismunandi smekk fyrir hestum, knöpum, höfum mismunandi skoðanir og það er bara frábært:)

Mikilvægt er að hafa kjark til að fylgja hjartanu, skora á sjálfan sig, óttast ekki álit annarra og vinna jákvætt úr gagnrýni. Neikvætt/ ljótt umtal SEGIR MEIRA UM VIÐHORF OG LÍÐAN ÞESS SEM TALAR, heldur en þann sem talað er um.  Jákvæðni er valkostur… ert þú búin/nn að velja? Frábæra hestafólk, gerum okkar mögnuðu hestamenningu enn magnaðri og skemmtilegri.

Stundum fordómalausa hestamennsku“

kær kveðja
Súsanna Sand
formaður Félags tamningamanna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link