„Við reynum að rækta hross sem höfða til okkar“

  • 6. febrúar 2021
  • Fréttir

Vignir Sigurðsson í Litlu-Brekku, Íþróttamaður Léttis 2020.

Viðtal við Vigni Sigurðsson í Litlu-Brekku

Norður í Eyjafirði er að finna jörðina Litlu-Brekku. Þar býr Vignir Sigurðsson ásamt fjölskyldu sinni, en Vignir er hestafólki að góðu kunnur, hefur verið virkur í félagsmálum hestamanna auk þess sem hann og hans fólk hefur náð góðum árangri á keppni- og kynbótavellinum síðustu misseri. Var Vignir nú í byrjun árs m.a. kosinn íþróttamaður Léttis árið 2020.

Eiðfaxi hafði samband norður yfir heiðar og fyrst var að spyrja hvernig tíðin fyrir norðan hefði leikið fólk. „Tíðin er búin að vera góð“ segir Vignir „og mun auðveldara að vinna við hross þessa dagana heldur en á sama tíma í fyrra. Undanfarið hefur þó verið mikill kuldi, þónokkur snjór er kominn en veðrið bjart og fallegt í dag allavega. Núna erum við með 16 hross á húsi, þar af eru nokkur sem við erum að þjálfa fyrir aðra. Öll okkar hross eru í þjálfun hér heima í Litlu-Brekku. Auk mín þá hefur Katrín Birna dóttir mín unnið við hestana hluta úr degi. Jónína konan mín hjálpar líka til við hirðingar og leggur á þegar tími gefst.“

Katrín Birna og Kató, Jónína og Dreki og Vignir og Eðalsteinn og loks hundurinn Tumi. Allt hestar frá Litlu-Brekku, Kató og Dreki eru geldingar en Eðalsteinn er stóðhestur á fimmta vetur.

Sem fyrr segir þá hafa hrossin frá Litlu-Brekku verið að standa sig vel í keppni og kynbótadómum og því ekki úr vegi að spyrja Vigni hvaða hross séu í mestum metum í hesthúsinu í Litlu-Brekku. „Flest hrossin sem eru inni eru ung og eiga eftir að sanna sig. Erum þó með tvær fyrstu verðlauna hryssur inni sem eru bestar eins og er en ég geri ekki upp á milli þeirra. Það eru þær eru Stjörnuþoka frá Litlu-Brekku sem er klárhryssa með tölti og Evíta frá Litlu-Brekku sem er alhliða hryssa. Stjörnuþoka er undan Pistli frá Litlu-Brekku og Stillu frá Litlu-Brekku en Evíta er undan Óskasteini frá Íbishóli og Esju-Sól frá Litlu-Brekku. Svo erum við með tvær hryssur á fjórða vetur í þjálfun. Önnur er leirljós undan Draupni frá Stuðlum, hin er fífilbleik stjörnótt undan Sirkusi frá Garðshorni. Þetta eru duglegar og skemmtilegar hryssur sem við bindum vonir við.

Egla frá Litlu-Brekku undan Blakk frá Þykkvabæ og Esju-Sól frá Litlu-Brekku

Hrossaræktin hjá Vigni og fjölskyldu er ekki stór í sniðum og síðasta sumar fæddust þeim fjögur folöld. Er eitthvað þar sem þeim líst sýnu best á? „Það er erfitt að gera upp á milli barnanna sinna“ segir Vignir. „Til að nefna eitthvað þá er hér til falleg jarpstjörnótt hryssa sem heitir Egla og er hún undan Blakk frá Þykkvabæ og Esju-Sól frá Litlu-Brekku. Þessi hryssa er framfalleg og lofthá sýnist mér. Eigum líka rauðstjörnótta hryssu undan Adrían frá Garðshorni á Þelamörk og Evítu (fósturvísafolald). Hún er stór og myndarleg og sýnir mikil tilþrif á gangi“ segir Vignir.

Og hvað með stóðhestanotkun ræktendanna í Litlu-Brekku? Hvaða stóðhestar voru notaðir síðasta sumar og hvaða stóðhesta stendur til að nota næsta sumar? „Í fyrra notuðum við Kná frá Ytra-Vallholti, Spaða frá Stuðlum, Atla frá Efri-Fitjum og Eyfjörð frá Litlu-Brekku. Það er jarpur foli á þriðja vetur undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Esju-Sól frá Litlu-Brekku. Hvað varðar notkun komandi sumars þá erum við búin að leggja inn pöntun í Kjerúlf frá Kollaleiru og Draupni frá Stuðlum. Meira er nú ekki ákveðið en maður er sífellt að velta þessu fyrir sér og jafnvel að skipta um skoðun og afpanta sem hlýtur að vera þreytandi fyrir stóðhesteigendur en svona er þetta nú bara“ segir Vignir brosandi. „Nokkrir árgangar af stóðhestabókunum liggja að jafnaði á náttborðinu. Við reynum að rækta hross sem höfða til okkar og sem við höfum gaman af að þjálfa. Við höfum lagt áherslu á að reyna að rækta hross sem geti nýst sem keppnishross í sporti og að þau séu meðfærileg þannig að sem flestir geti notið þeirra. Séu reiðhestlega byggð, hafi traust geðslag og góð gangskil.

Vignir og Stjörnuþoka frá Litlu-Brekku.

Vignir segir ánægjulegt að heyra og sjá hversu vel hrossaræktin og hestamennskan hefur gengið á fordæmalausum tímum. „Útflutingur virðist ganga vel, mikið að gera á tamningastöðvum og í reiðkennslu, innanlands allavega. Ég held að framtíðin sé björt fyrir þessa atvinnugrein og að tækifærin leynist víða“ segir Vignir Sigurðsson að endingu,

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link