„Við þurfum að læra að hlusta á hestinn“
Guðrún Pálína Jónsdóttir hefur rannsakað áhrif aðbúnaðar á hegðun íslenskra hesta og kennir nú námskeiðið SÁTT – Hestaatferli hjá Spretti.
Auglýsing fyrir námskeiðið SÁTT – Hestaatferli, sem nú stendur yfir á vegum hestamannafélagsins Spretts vakti athygli blaðamanns. Þar er lögð áhersla á samskipti, traust og skilning á hegðun hesta. Það varð tilefni til að leita til Guðrúnar Pálínu Jónsdóttur kennara námskeiðsins og fræðast nánar um bakgrunn hennar og rannsóknir á sviði hestaatferlis.
Guðrún hefur starfað með dýrum í nærri tvo áratugi og lýkur nú meistaragráðu í klínískri dýraatferlisfræði við Edinborgarháskóla. Hún er jafnframt menntuð í sálfræði og búvísindum og segir áhugann á hegðun dýra hafa fylgt sér lengi.
„Það sem hefur heillað mig mest er tengingin sem við getum myndað við dýr og hvernig við getum eflt hana með því að læra að lesa hegðun þeirra,“ segir hún.
Rannsakaði áhrif útigerða
Sem hluta af meistaranámi sínu rannsakaði Guðrún áhrif stærðar útigerða á hegðun íslenskra hesta. Markmiðið var að kanna hvort stærð útigerða hefði áhrif á hegðun hestanna og samskipti þeirra innbyrðis.
Niðurstöðurnar bentu meðal annars til þess að hestarnir áttu í fleiri jákvæðum samskiptum sín á milli þegar þeir höfðu meira rými til umráða og veltu sér þá einnig oftar og lengur. Guðrún segir rannsóknina hafa sprottið af áhuga á því hvernig aðstæður sem við búum hestum geta haft áhrif á líðan þeirra.
„Hestar eru mikið á hreyfingu í hagagöngu, éta stóran hluta sólarhringsins og hafa mikla þörf fyrir félagsleg samskipti. Mér fannst áhugavert að skoða hvort stærð útigerða væri einn af þeim þáttum sem hefði áhrif á hegðun þeirra.“
Þótt rannsóknin hafi verið framkvæmd á takmörkuðu úrtaki telur hún að niðurstöðurnar gefi áhugaverðar vísbendingar sem vert sé að skoða nánar í framtíðinni. Málefnið sé ekki síst áhugavert þar sem stærð útigerða og aðbúnaður hrossa eru hluti af daglegum veruleika margra hestamanna.
Að skilja hvað býr að baki
Að sögn Guðrúnar hefur námið fyrst og fremst kennt henni að horfa með öðrum augum á hegðun hesta.
„Hegðun gefur okkur mikilvægar upplýsingar um líðan hestsins, umhverfið og hvernig hann upplifir samskipti og þjálfun. Ég velti meira fyrir mér af hverju ákveðin hegðun kemur fram frekar en að horfa bara á hegðunina sjálfa.“
Hún segir algengt að menn túlki viðbrögð hesta út frá eigin hugsunarhætti og leggi mannlegar skýringar á hegðun þeirra.
„Við tölum stundum um að hestur sé góður eða illur út frá hegðun hans. Þegar maður fer frekar að horfa á hvað hesturinn er að upplifa, hvað hann hefur lært og hvaða tilgangi hegðunin þjónar verður auðveldara að skilja viðbrögð hans.“
Að hennar mati snýst atferlisfræði að stórum hluta um að spyrja ekki aðeins hvað hesturinn sé að gera, heldur einnig hvers vegna hann geri það.
Mikilvægt að lesa litlu merkin
Eitt af því sem Guðrún leggur ríka áherslu á er að hestamenn læri að lesa líkamstjáningu hesta betur. Streita og óöryggi getur komið fram með ýmsum hætti, til dæmis í spennu í líkamanum, breyttri stöðu eyrna, spennu í kringum munn og nasir eða því að meira sjáist í hvítuna í augunum.
Á sama hátt er mikilvægt að þekkja merki um slökun og vellíðan.
„Eitt merki segir okkur sjaldnast alla söguna, en þegar við lærum að lesa mörg lítil merki saman getum við oft brugðist mun fyrr við.“
Guðrún bendir einnig á að hestar reyni gjarnan að fela veikleika sína. Því geti verið mikilvægt að þekkja svokallað pain face, svipbrigði sem geta gefið vísbendingar um sársauka og hjálpað eigendum að grípa fyrr inn í þegar eitthvað amar að.
Traust byggist í báðar áttir
Á námskeiðinu hjá Spretti er jafnframt lögð áhersla á hvernig líðan knapans hefur áhrif á hestinn. Hestar eru afar næmir á breytingar í líkamsstöðu, vöðvaspennu og öndun fólks.
„Ef við erum stressuð eða óörugg geta ábendingarnar orðið óskýrar. Hesturinn getur brugðist við því með aukinni spennu og þá getur myndast ákveðinn vítahringur á milli hests og knapa.“
Einnig er fjallað um jákvæða styrkingu og hvernig hún getur nýst í þjálfun samhliða hefðbundnum aðferðum. Guðrún segir slíkar aðferðir geta verið öflugt verkfæri til að kenna nýja hegðun og gert þjálfunina ánægjulegri fyrir bæði hest og manneskju.
Hesturinn hefur líka eitthvað að segja
Spurð hvaða eitt ráð hún myndi helst gefa hestamönnum svarar Guðrún án þess að hika:
„Gefðu hestinum val eins oft og þú mögulega getur.“
Að hennar mati verða bestu tengslin til þegar samskipti ganga í báðar áttir og hesturinn fær tækifæri til að tjá sig.
„Fyrir mér eru góð samskipti ekki bara að hesturinn læri að hlusta á okkur, heldur að hann upplifi að við hlustum líka á hann.“
Sú hugsun er jafnframt kjarninn í þeirri nálgun sem Guðrún miðlar bæði í námi sínu og kennslu. Hegðun hestsins er ekki vandamál sem þarf að laga heldur skilaboð sem vert er að hlusta á. Með auknum skilningi á atferli hrossa má styrkja bæði velferð þeirra og sambandið sem flestir hestamenn sækjast eftir að byggja upp við hestinn sinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Agnar Snorri ráðinn til norska landsliðsins