,,Við verðum að líta á þetta verkefni sem samstarf“
Nýjasta tímarit Eiðfaxa er nú farið í prentvélarnar, stútfullt af skemmtilegu efni og fróðleik.
Í tímaritinu er m.a. að finna viðtal við Þorvald Kristjánsson í tilefni af því að hann lætur af störfum sem ábyrgðarmaður í hrossarækt nú í haust. Hér birtist bútur úr viðtalinu þar sem Þorvaldur er spurður að því hvort hann hafi einhvern tímann átt slæman dag sem dómari?
„Ég myndi nú ekki orða það þannig en það er alltaf vont að dæma þegar aðstæður eru ekki í lagi, völlur og/eða veður. Það skiptir alltaf í þessari vinnu máli að vera jákvæður og fókuseraður enda liggur mikil vinna yfirleitt undir á svona sýningum og því verður að sýna tilhlýðilega virðingu. Ég tel mig muna vel eftir þeim hrossum sem ég dæmi og á því gott með að færa rök fyrir mínum dómum. En þetta snýst um viðhorf til starfsins, þetta er þjónustustarf en auðvitað þarf að ríkja virðing á báða bóga því fólkið í dómskúrnum hefur vit á því sem það er að gera. Við verðum að líta á þetta verkefni sem samstarf þó svo menn séu ekki alltaf sammála um það sem fram fer í brautinni.“
Tryggðu þér áskrift að Eiðfaxa, fáðu hann sendan heim að dyrum og styddu um leið við faglega umfjöllun um íslenska hestinn og allt það sem honum tengist með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH