Viðar Ingólfs með nýjan hest

  • 24. janúar 2012
  • Fréttir
Viðar Ingólfs með nýjan hest

Hinn snjalli knapi Viðar Ingólfsson segist vel stemmdur fyrir fjórganginn í Meistaradeildinni. Hann er liðsstjóri Hrímnis liðsins. „Hestakostur liðsins er að nokkru óráðinn, en ljóst er þó að ég mæti sjálfur með nýtt hross, hryssuna Vornótt frá Hólabrekku. Hún er 6 vetra fyrstu verðlauna hryssa, mjög spennandi efni. Ég hef þjálfað Vornótt frá því í nóvember, en hún er í okkar eigu hér á Kvíarhóli.“

 

Liðsfélagar Viðars eru þau Artemisia Bertus, sem er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla, Daníel Ingi Smárason, sem hefur verið að gera góða hluti í keppni undanfarin ár, og John Kristinn Sigurjónsson, sem er tamningamaður FT og starfar við tamningar að Ármóti á Rangárvöllum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link