„Viðburðinn er hátíð sem safnar saman fólki alls staðar að“
Norðurlandamót íslenska hestsins fer fram í Álandseyjum, Finnlandi 9. til 14. ágúst 2022. Mótshaldarar sendu frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem þeir hvetja fólk að mæta á staðinn en keppnisvæðið á víst að vera eitt það besta í Finnlandi.
„Álandseyjar, á kjörstað í Eystrasalti, er með nýbyggða keppnisvelli fyrir íslenska hestinn og keppnissvæði er með fullkominni aðstöðu, og svæðið er orðið eitt besta mótsvæði Finnlands. Ofangreindar ástæður eru hluti af ástæðum þess að NM 2022 verður haldið á Álandseyjum,“ kemur fram í fréttatilkynningu frá mótshöldurum. Mótið er skipulagt af íslenska hestafélaginu Álenskur, hestamannafélagsins á Álandseyjum og finnska íslenska hesta landssambandinu.
Norðurlandamót eru vanalega haldin annað hvert ár en árið 2020 átti það að vera haldið í Svíþjóð en var aflýst vegna heimsfaraldursins. Það eru því fjögur ár síðan Norðurlandamót var síðast haldið. Það er því mikill áhugi fyrir mótinu í sumar og eru nágrannalöndin þegar farin að spá áhorfendameti. Hámarksfjöldi þátttökuhrossa er 246 og við það bætist að hámarki 60 varahross. Áætlaður raunverulegur fjöldi þátttökuhrossa er um 200. Með hestunum fylgja síðan 200 knapar og 200 aðstoðarmenn. Áætlað er að áhofendur verði um 3.000 til 5.000 talsins.
„Á meðan á viðburðinum stendur er keppnin aðalatriði en viðburðinn er einnig hátíð sem safnar saman fólki alls staðar að af Norðurlöndunum. Norðurlandamót eru fjölskylduviðburður sem sameinar konur og karla, stelpur og strákar á öllum aldri. Fyrir utan keppnina sjálfa verður boðið upp á opnunarhátíð, dagskrá í hléum og kvöldviðburði,“ segir í tilkynningunni en á svæðinu sjálfu verður gestum boðið upp á veitingasölu og markaðsgötu með sölubásum þar sem bæði fyrirtæki frá Álandseyjum og erlend fyrirtæki bjóða vöru sína til sölu.
Keppnissvæðið er staðsett aðeins þremur kílómetrum frá Mariehamm, höfuðborg Álandseyja, en þar eru fjölmörg hótel, áhugaverðir staðir og veitingastaðir í boði fyrir gesti. „Gestir okkar geta því sameinað Norðurlandameistaramót og sumarfrí við sjóinn í eyjaklasanum á sólríku Álandseyjum,“ kemur fram í tilkynningu þeirra.
Miðasala er hafin á mótið en sérstakt tilboð er á miðum til 14. febrúar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH