Vignir Jónasson tilnefndur í Svíþjóð sem kynbótaknapi ársins
Vignir og Ivan frá Hammarby á HM2017
Svíar tilnefndu nú í morgun fimmta og síðasta knapann sem tilnefndur er sem kynbótaknapi ársins ár í landi. Alls eru fjórir knapar af fimm íslenskir.
Vignir Jónasson sýndi alls 4 hross í fimm sýningum. Meðalaldur þeirra var 5,8 ár. Meðaltal þeirra fyrir sköpulag var 8,11, meðaltal fyrir hæfileika 7,83 og aðaleinkunn 7,95.
Áður hafði farið fram kynning á þeim Garðari Gíslasyni, Fredrik Rydström,Eyjólfi Þorsteinssyni og Erlingi Erlingssyni sem einnig eru tilnefndir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH