Vignir Sigurðsson krýndur Íþróttamaður Léttis

  • 19. janúar 2021
  • Fréttir

Vignir Sigurðsson, Íþróttamaður Léttis 2020.

Hestamannafélagið Léttir á Akureyri tilkynnti í gær, 18. janúar, um val sitt á Íþróttamanni Léttis fyrir árið 2020 en þetta kemur fram á Facebooksíðu félagsins.

Það var Vignir Sigurðsson, jafnan kenndur við Litlu-Brekku sem var krýndur Íþróttamaður Léttis 2020 en hann átti góðu gengi að fagna á keppnisbrautinni á síðasta ári og er vel að þessum titli kominn. Vignir var efstur í valinn með 66 stig, næstur á eftir honum kom Guðmundur Karl Tryggvason með 48 stig og þriðji varð Auðbjörn Kristinsson með 26 stig. Eiðfaxi óskar öllum þessum köppum innilega til hamingju með árangurinn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar