Víðir frá Prestsbakka fær uppreisn
Víðir frá Prestsbakka fær uppreisn æru í afvæmum sínum. Nú hafa verið fullsýnd fimm hross undan honum og öll eru með fyrstu verðlaun. Víðir er 9 vetra en aðeins 59 afkvæmi hans eru skráð í WorldFeng. Ekkert afkvæmi er skráð 2009 og 2010.
Miklar vonir voru bundnar við Víði þegar hann var foli. Hann er undan Keili frá Miðsitju og Gleði frá Prestsbakka, Þorradóttur frá Þúfu. Gleði heillaði áhorfendur á LM2000 í Reykjavík upp úr skónum og er í hugum flestra hestamanna eitt mesta djásn í hópi íslenskra hryssna.
Víðir olli hins vegar vonbrigðum þegar hann kom fyrst í dóm, þótt hann sé kominn í prýðilega einkunn í dag. Hafði það áhrif á notkun hans, sem hefur verið í minna lagi. Tilgáta var uppi um að hann hefði ofreynt sig eða orðið fyrir áfalli sem olli stirðleika og eymslum í vöðvum. Ýmislegt bendir til að þær grunsemdir hafi átt við rök að styðjast. Gott orð fer af afkvæmum hans, sem því miður eru allt of fá.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári