Viktor og Drottning Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði!

  • 24. júlí 2026
  • Fréttir

Viktor Arnbro og Drottning. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka

Niðurstöður í gæðingaskeiði í unglingaflokki

Keppni á Íslandsmóti barna og unglinga hófst í dag á keppni í gæðingaskeiði í unglingaflokki og því fyrsti Íslandsmeistarinn á mótinu krýndur. Framundan er svo forkeppni í tölti bæði í unglinga- og barnaflokki en dagskrá dagsins lýkur seinni partinn á forkeppni í gæðingakeppni unglinga. Sýnt er frá mótinu á EiðfaxaTV.

Dagskrá dagsins er aðgengileg hér neðst í fréttinni og þá er hægt að fylgjast með niðurstöðum, dagskrá og fleiru á HorseDay.

Íslandsmeistari í gæðingaskeiði í unglingaflokki árið 2026 er Viktor Arnbro Þórhallsson á Drottningu frá Ysta-Gerði en hann sýndi tvo frábæra skeiðspretti og hlaut í einkunn 7,04. Í öðru sæti varð Bryndís Anna Gunnarsdóttir og Von frá Ási 1 með 6,50 í einkunn og í þriðja sæti varð Loftur Breki Hauksson á Sölva frá Stuðlum með 6,21 í einkunn.

Niðurstaða í gæðingaskeiði
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Viktor Arnbro Þórhallsson Drottning frá Ysta-Gerði 7,04
2 Bryndís Anna Gunnarsdóttir Von frá Ási 1 6,50
3 Loftur Breki Hauksson Sölvi frá Stuðlum 6,21
4 Sigríður Fjóla Aradóttir Kolfreyja frá Hvítárholti 6,04
5 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Hildur frá Feti 6,04
6 Ögn H. Kristín Guðmundsdóttir Dimma frá Syðri-Reykjum 3 5,96
7 Unnur Rós Ármannsdóttir Næturkráka frá Brjánsstöðum 5,79
8 Álfheiður Þóra Ágústsdóttir Líf frá Vestra-Fíflholti 5,50
9 Róbert Darri Edwardsson Fröken frá Ásmúla 5,50
10 Svava Marý Þorsteinsdóttir Sæmd frá Syðra-Langholti 5,33
11 Elimar Elvarsson Eva frá Strandarhjáleigu 5,08
12 Fríða Hildur Steinarsdóttir Þyrnir frá Enni 4,50
13 Ísabella Helga Játvarðsdóttir Lávarður frá Ekru 4,50
14 Alexander Þór Hjaltason Gnýr frá Gunnarsholti 4,13
15 Arnór Darri Kristinsson Ófeig frá Syðra-Holti 3,96
16 Ragnar Dagur Jóhannsson Urla frá Pulu 3,83
17 Helga Rún Sigurðardóttir Lás frá Jarðbrú 1 3,71
18 Kristín Rut Jónsdóttir Ása frá Fremri-Gufudal 3,21
19 Elsa Kristín Grétarsdóttir Hrund frá Hólaborg 3,17
20 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Þórfinnur frá Skáney 3,04
21 Anna Sigríður Erlendsdóttir Venus frá Skarði 2,92
22 Greta Berglind Jakobsdóttir Þáttur frá Miðsitju 2,67
23 Una Björt Valgarðsdóttir Gígja frá Tungu 2,67
24 Elísabet Benediktsdóttir Óðinn frá Silfurmýri 2,00
25 Helgi Björn Guðjónsson Vissa frá Jarðbrú 1,33
26 Viktor Leifsson Sæmd frá Eylandi 1,17
27 Bertha Liv Bergstað Glossi frá Ytra-Dalsgerði 1,00
28 Ylva Sól Agnarsdóttir Erla frá Feti 0,75
29 Gabríela Máney Gunnarsdóttir Jarl frá Steinnesi 0,67
30 Viktoría Huld Hannesdóttir Dama frá Varmalandi 0,00
Dagskrá Föstudagur 24. júli

09:30 Gæðingaskeið
11:00 Hlé
11:30 Tölt T1 Unglingaflokkur 1-14
12:30 Matur
13:15 Tölt T1 Unglingaflokkur 15-40
15:15 Vallarhlé
15:30 Tölt T3 Barnaflokkur
16:40 Gæðingaflokkur Unglinga 1-17
18:10 Matur
18:50 Gæðingaflokkur Unglinga 18-40
20:50 Dagskrálok

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link