Viltu sýna þína ræktun á LM2026?
Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á Landsmótum hestamanna og á LM2026 verður engin breyting þar á. Tilhögun sýninga verður með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði miðuð við 10 ræktunarbú, auk tveggja boðsbúa þiggi þau boðið.
Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar hlaut viðurkenninguna ræktunarbú ársins 2025 og er þeim boðin þátttaka auk keppnishestabús ársins sem var Strandarhöfuð.
Ræktunarbúin eru á dagskrá mótsins fimmtudagskvöldið 9. júlí og mun áhorfendum verða boðið að kjósa bestu ræktunarbússýninguna. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Landsmóts.
Síðasti dagur til að sækja um þátttöku er í dag, 16. júní, en frestur er til miðnættis.
Viltu sýna þína ræktun á LM2026?
Tinni slær heimsmet
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna hefst á morgun