Viltu syngja með kemmtilegasta kórnum á landinu?
Nú gefst frábært tækifæri til að ganga til liðs við Brokkkórinn..
sem samanstendur af söngelsku hesta- og útivistarfólki. Við tökum vel á móti öllum en karlaraddir og þá sérstaklega bassar yrðu alveg sérstaklega vinsælir 🙂 Spennandi dagskrá framundan, söngur, gleði og glens í bland við hressandi útivist á hestbaki. Stjórnandi kórsins er hinn víðáttuhressi hesta- og tónlistarmaður Magnús Kjartansson. Ekki láta þig vanta í vetur, æfingar eru einu sinni í viku, á þriðjudögum kl. 20, í Fáksheimilinu. Kíktu á heimasíðuna okkar www.123.is/brokk
Sjáumst,
Brokkkórinn
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH