Viltu taka þátt í nýrri keppnisgrein?
Keppt verður í fyrsta skipti í nýrri keppnisgrein, „Hestamennsku FT“ á afmælishátið félagsins nk. laugardag. Reglur og lýsingu á greininni má lesa hér á vefnum og á vef FT en markmið hennar er að hafa samspil manns og hest í öndvegi.
Í brennidepli á að vera rétt og vel þjálfaður hestur og góð hesta- og reiðmennska.
Þeir sem hafa áhuga á að vera með í frumraun þessari geta sent inn skráningu fyrir kl. 14 föstudaginn 18. febrúar á netfangið [email protected]. Fram þarf að koma nafn hests og knapa. Tónlist við atriðið sendist fyrir sama tíma á netfangið [email protected].
Keppni í Hestamennsku FT hefst kl. 16 á laugardaginn og er lokaatriði stórsýningarinnar í reiðhöllinni í Víðidal.
Æfingatímar fyrir keppendur verða í Reiðhöllinni Víðidal 18. febrúar frá kl. 20. Einnig er reiðhöllin opin frá kl. 9-15 fyrir sýnendur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH