Vinningshafar í afmælishappdrætti FT
Dregið hefur verið í happdrætti afmælishátíðar FT, en aðgöngumiðar á hátíðina voru númeraðir og gilda sem happdrættismiðar. Eftirtalin númer voru dregin út:..
Folatollur undir Glym frá Innri – Skeljabrekku – miði nr. 307
Folatollur undir Asa frá Lundum II – miði nr. 636
Folatollur undir Hring frá Fellskoti – miði nr. 485
Folatollur undir Haka frá Bergi – miði nr. 185
Vinningshafar eru beðnir um að setja sig í samband við skrifstofu FT, en hún er opin á þriðjudögum og fimmtudögum. Sími 563 0300. Einnig má senda tölvupóst á netfangið [email protected] og þá hefur starfsmaður félagsins samband í framhaldinu.
Um leið og við þökkum gefendum folatolla stuðninginn viljum við óska vinningshöfum til hamingju og minnum aðra gesti á að aðgöngumiðinn gildir einnig sem afsláttarmiði í Ástund næstu daga.
Félag tamningamanna
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH