Vita frábært tölt

  • 1. ágúst 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Stóðhesturinn Viti frá Kagaðarhóli er einn af mörgum frábærum tölturum Smára frá Skagaströnd.

Viti frá Kagaðarhóli er einn af vinsælustu stóðhestum landsins þessa dagana og er stútfullt undir hann norður í Viðvíkursveit í Skagafirði. Hann vakti mikla hrifningu mótsgesta á LM2012 fyrir alveg vita frábært tölt (9,5), mýkt og fas. Hann er einn af nokkrum afkvæmum Smára frá Skagaströnd sem sameina ekta reiðtölt, mikinn fótaburð og mýkt. Má þar nefna Loka frá Selfossi, sem var í toppbaráttunni í B flokki á LM2012. Móðir Vita er Ópera frá Dvergsstöðum, Kveiksdóttir frá Miðsitju. Eigendur og ræktendur eru Víkingur Þór Gunnarsson og Guðrún J. Stefánsdóttir, kennarar við Hólaskóla. Knapi og þjálfari Vita er meistari Gísli Gíslason frá Hofsstöðum í Hálsasveit.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link