„Vitringarnir stökkva fram“

  • 2. mars 2020
  • Fréttir

Stakkur frá Halldórsstöðum á skeiði, eða hvað?

Vangaveltur formanns Gæðingadómara eftir pistil Jens Einarssonar.

Á facebooksíðunni Hestar og Reiðmenn hefur skapast mikil umræða um gangtegundina skeið í ljósi fréttaflutnings á vef Hestafrétta um meintan dómaraskandal í fimmgangskeppni Meistaradeildarinnar.

Þar hefur dómstöll götunnar farið hamförum og því miður hefur umræðan snúist að mestu leyti um einn tiltekinn hest og knapa en ekki hvað veldur þessu ósamræmi.

Jón þorberg Steindórsson skrifaði niður hugleiðingar sýnar um hvað það er sem veldur þessum mikla skoðana-muni.

Pistilin má lesa hér fyrir neðan.

 

„Þessi ótrúlega umræða sem hefur farið fram hér á þessum vettvangi sýnir glögglega hversu miklar ógöngur við erum komnir í með íþróttina okkar. Hér hafa menn deilt um það hvort skeiðsýning Hinriks Bragasonar á Lukku-Láka frá Stóra-Vatnsskarði verðskuldi góða einkunn fyrir gangtegundina eða hvort hún standist ekki þær kröfur sem gerðar eru til skeiðs og eigi því ekki að fá einkunn eða í besta falli mjög lága.
Nú geta allir, sem á annað borð hafa aðgang að þessu spjalli, séð þessa sýningu og geta skoðað hana í hægri endursýningu ef þeim sýnist svo. Samt sem áður getum við ekki komist að niðurstöðu um gæði þeirrar gangtegundar sem sýnd er. Hvað veldur? Erum við svona ósammála um hvað við sjáum eða erum við ósammála um hvað einkennir þessa gangtegund?

Þeim rökum hefur verið teflt fram að keppinautar Hinriks hafi sumir hverjir sýnt verra skeið og hlotið góða einkunn fyrir. Ekki ætla ég að efast um það og er þeirrar skoðunar að svo hafi verið í einhverjum tilfellum. Það er vissulega skiljanlegt að keppnismönnum mislíki slíkt óréttlæti en gerir það eitt og sér skeiðspretti Lukku-Láka góða og gilda? Nei það gerir það ekki í mínum huga að minnsta kosti. Þá erum við hreinlega að viðurkenna að sú gangtegund sem einkennir fimmgang öðrum fremur, skeiðið, skipti í raun ekki máli í þessari keppni.
Það virðist að minnsta kosti vera skoðun Jens Einarssonar skilji ég innleg hans rétt. Hann virðist halda því fram að ekkert okkar hafi til að bera þann hæfileika að greina á milli skeiðs og tölts (þegar það er á ákveðnu rófi). Ef það er rétt hljótum við hreinlega að þurfa að sameina þessar tvær gangtegundir í eina, við getum kannski kallað hana skrölt.

Máli sínu til stuðnings teflir Jens fram tveimur myndum af hestum sem er þekktir sem klárhestar báðir tveir. Myndirnar sína vissulega svo ekki verður um villst að þeir svífa á því augnabliki sem myndin er tekin. Við höfum engar forsendur til þess að meta sýningar þessara ágætu hesta neitt frekar. Við getum ekki út frá einni ljósmynd myndað okkur skoðun á því hvort annar þeirra verðskuldi hærri einkunn fyrir skeið og hinn lægri einkunn fyrir tölt í tilteknum sýningum, okkur vantar samhengið og þessi dæmi sanna ekki með neinum hætti getu eða vangetu dómara eða hestamanna almennt til þess að greina á milli gangtegundanna. Það hefur vissulega gerst að hestar í töltkeppni hafi svifið með slíkum ágætum að vafi hafi risið um ágæti gangtegundarinnar án þess að það hafi komið niður á einkunn þeirra fyrir atriðið. Er það almenn vangeta sem Jens telur alla eiga sameiginlega eða getur verið að önnur atriði hafi þar áhrif, eins og til dæmis kjarkur dómara undir mikilli pressu?

Þessi umræða sýnir einmitt líka að það þarf meira en lítinn kjark til þess að taka ákvörðun sem slíka og ég held að enginn dómari taki hana með létum hug. Fullyrt hefur verið m.a. á vef Hestafrétta að þessir ágætu dómarar sem þarna voru að störfum hafi byggt einkunn sína á orðrómi um hestinn en ekki því sem hann sýndi umrætt kvöld. Getum við í alvöru ekki skipst á skoðunum án þess að væna annað fólk um óheiðarleika?
Þetta eru í stuttu máli rökin til varnar þessari sýningu. Einhverja hef ég séð lýsa því sem fyrir augu ber á myndbandinu og um leið færa rök fyrir einkunn upp á 6-7. Það hafa hins vegar nokkrir þegar gert um hið gagnstæða. Þeir telja sýninguna ekki verðskulda háa einkunn, virðast sammála um að hesturinn svífi eitthvað á fyrri spretti þó seint sé og verðskuldi því einhverja einkunn, þó ekki háa. Þeir eru hins vegar allir sammála um að hesturinn svífi ekkert á seinni spretti og verðskuldi núll fyrir þá sýningu. Sé það rétt hjá þeim að hesturinn svífi lítið sem ekkert á hann ekki að fá hærra en 3 í heildareinkunn, samkvæmt leiðara íþróttadómara. Ég hef engan heyrt fullyrða að hann svífi. Finnst fólki kannski í lagi að hestar fái yfir 6 í einkunn með lítið eða ekkert svif? Liggur ágreiningurinn þar? Vill fólk sem sagt virkilega að litið verði fram hjá þeim galla að hestur svífi ekki þegar sýnt er skeið?

Samkvæmt því sem Jens heldur hér fram er þetta einhver ímyndun í þessum „vitringum.“ Þeir geta ekki greint á milli þessara líku gangtegunda þegar þær eru á ákveðnu „rófi“ svo notað sé hans orð. Nú er ég kannski örlítið að snúa út úr þar sem Jens á væntanlega við að ekki sé mögulegt að greina þetta í rauntíma, augnablikinu sem dómarinn hefur. Sé það rétt, þarf að breyta þeim reglum sem dómararnir fara eftir. Því leiðarinn þeirra gerir þá kröfu að þeir geti greint hvenær hesturinn svífi t.d. lítið sem ekkert. Ef þetta eru óraunhæfar kröfur til dómaranna verður að breyta leiðaranum. Hætta að meta takt þegar hraðinn er mikill og sameina þá kannski flokka klár- og alhliðahesta og dæma bara yfirferð. Að öðrum kosti fara í þá vinnu að draga ákveðna línu þarna á milli og fara eftir því. Það er löngu komin tími til þess að við skoðum okkar gang því við erum kominn í ógöngur fyrir löngu síðan. Skeið eins og það hefur hingað til verið skilgreint sem tvítakta gangtegund með svifi er við það að hverfa úr íþróttinni.

Ég er sjálfur ekki í minnsta vafa að dómarar jafnt sem hestamenn eiga ekki í nokkrum vandræðum með að greina á milli þess sem er hreint tölt eða hreint skeið. Það á ekki að viðurkenna neitt „róf“ sem aðra hvora gangtegundina. Leiki mikil vafi á hvaða gangtegund er verið að sýna ber það að koma niður á einkunn hennar í samræmi við það sem leikreglurnar kveða á um og ég sætti mig alls ekki við að sviflaust „skeið“ hljóti einkunn upp á 6-7 og það sé viðurkennt. Keppni á íslenskum hestum snýst um gangtegundirnar. Gefnar eru einkunnir fyrir þær og ef vafi leikur á hvaða gangtegund er sýnd hverju sinni getur það varla verðskuldað góða einkunn og enginn getur sagt að þessi umræða hafi leitt í ljós að gæði skeiðsins sem Lukku-Láki sýndi í Meistaradeildinni síðastliðið fimmtudagskvöld hafi verið hafin yfir allan vafa, um það vitnar umræðan sem hér fer fram.

Jón Þorberg
Formaður GDLH

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link