Vökrustu hrossin undan Kiljani frá Steinnesi
Kiljan frá Steinnesi knapi: Hans Þór Hilmarsson
Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.
Alls eru þeir stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu 37 talsins.
Nú skoðum við eiginleikann skeið.
Af þeim stóðhestum sem eiga 10 eða fleiri dæmda afkvæmi í ár eru afkvæmi Kiljans frá Steinnesi með hæsta meðaleinkunn fyrir skeið en þau hlutu 8,06 fyrir þann eiginleika. Alls átti hann 18 sýnd afkvæmi í ár sem eru 6,8 vetra að meðaltali.
Næstur honum er Trymbill frá Stóra-Ási með 14 dæmd afkvæmi sem eru 5,9 vetra að meðaltali með einkunnina 7,75. Spuni frá Vesturkoti er þriðji með 51 dæmd afkvæmi sem eru 6,4 vetra að meðaltali en einkunn þeirra er 7,71 að meðaltali.
Hér er listi yfir alla stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn afkvæma þeirra fyrir brokk
| Hestur | Fjöldi | Meðalaldur | Skeið |
| Kiljan frá Steinnesi | 18 | 6,8 | 8,06 |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 14 | 5,9 | 7,75 |
| Spuni frá Vesturkoti | 51 | 6,4 | 7,71 |
| Jarl frá Árbæjarhjáleigu II | 19 | 6,2 | 7,68 |
| Stáli frá Kjarri | 39 | 6,2 | 7,60 |
| Eldur frá Torfunesi | 19 | 6,6 | 7,42 |
| Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 | 11 | 7,5 | 7,36 |
| Sjóður frá Kirkjubæ | 27 | 6,0 | 7,35 |
| Óskasteinn frá íbishóli | 20 | 6,5 | 7,33 |
| Ómur frá Kvistum | 36 | 6,3 | 7,28 |
| Aron frá Strandarhöfði | 11 | 6,8 | 7,23 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti | 38 | 6,0 | 7,12 |
| Prins frá Knutshyttan | 10 | 7,0 | 7,05 |
| Hróður frá Refsstöðum | 16 | 7,3 | 6,97 |
| Sær frá Bakkakoti | 14 | 7,7 | 6,93 |
| Hrannar frá Flugumýri II | 35 | 5,6 | 6,86 |
| Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum | 11 | 5,4 | 6,82 |
| Arður frá Brautarholti | 17 | 6,7 | 6,79 |
| Viti frá Kagaðarhóli | 15 | 6,0 | 6,77 |
| Aðall frá Nýjabæ | 12 | 6,3 | 6,75 |
| Álfasteinn frá Selfossi | 15 | 6,2 | 6,73 |
| Ölnir frá Akranesi | 21 | 4,9 | 6,64 |
| Hnokki frá Fellskoti | 11 | 5,6 | 6,64 |
| Viktor frá Diisa | 11 | 7,1 | 6,59 |
| Konsert frá Hofi | 37 | 4,8 | 6,55 |
| Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði | 14 | 6,3 | 6,54 |
| Toppur frá Auðsholtshjáleigu | 11 | 6,1 | 6,45 |
| Skýr frá Skálakoti | 34 | 5,6 | 6,31 |
| Oliver frá Kvistum | 10 | 6,6 | 6,30 |
| Kjerúlf frá Kollaleiru | 14 | 6,6 | 6,25 |
| Lord frá Vatnsleysu | 11 | 6,4 | 6,18 |
| Álfur frá Selfossi | 29 | 6,8 | 6,14 |
| Framherji frá Flagbjarnarholti | 17 | 6,2 | 6,03 |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 11 | 5,6 | 5,82 |
| Loki frá Selfossi | 20 | 5,8 | 5,75 |
| Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum | 12 | 6,7 | 5,54 |
| Hrímnir frá Ósi | 13 | 6,5 | 5,46 |
Hver er með hæsta meðaleinkunn fyrir tölt – Smelltu hér
Hróður og Loki eiga þau afkvæmi sem hlutu hæst fyrir brokk í ár – Smelltu hér
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH