Hróður og Loki eiga þau afkvæmi sem hlutu hæst fyrir brokk í ár

  • 16. október 2020
  • Fréttir

Hróður frá Refsstöðum á LM2000 ljósmynd: Eiríkur Jónsson

Af þeim stóðhestum sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu

Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.

Alls eru þeir stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu 37 talsins.

Nú tökum við fyrir eiginleika í hæfileikdómi og er röðin komin að brokki.

Þeir tveir stóðhestar sem eiga þau afkvæmi sem hesta meðaleinkunn hlutu brokk á árinu eru þeir Hróður frá Refsstöðum og Loki frá Selfossi. Afkvæmi þeirra hlutu að meðaltali 8,38 fyrir brokk. Hróður á 16 dæmd afkvæmi í ár og er meðalaldur þeirra 7,3 ár, Loki á 20 dæmd afkvæmi í ár og er meðalaldur þeirra 5,8 ár. Þriðji á listanum er Kjerúlf frá Kollaleiru en afkvæmi hans hlutu 8,36 að meðaltali fyrir brokk.

Hér er listi yfir alla stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn afkvæma þeirra fyrir brokk

 

Hestur Fjöldi fullnaðardæmdra Meðalaldur Brokk
Hróður frá Refsstöðum 16 7,3 8,38
Loki frá Selfossi 20 5,8 8,38
Kjerúlf frá Kollaleiru 14 6,6 8,36
Hrímnir frá Ósi 13 6,5 8,27
Álfur frá Selfossi 29 6,8 8,26
Trymbill frá Stóra-Ási 14 5,9 8,25
Hrannar frá Flugumýri II 35 5,6 8,24
Framherji frá Flagbjarnarholti 17 6,2 8,24
Lord frá Vatnsleysu 11 6,4 8,23
Skýr frá Skálakoti 34 5,6 8,19
Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 11 7,5 8,18
Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði 14 6,3 8,18
Kiljan frá Steinnesi 18 6,8 8,17
Óskasteinn frá íbishóli 20 6,5 8,15
Arður frá Brautarholti 17 6,7 8,15
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 11 5,6 8,14
Sjóður frá Kirkjubæ 27 6,0 8,07
Ölnir frá Akranesi 21 4,9 8,07
Eldur frá Torfunesi 19 6,6 8,05
Hnokki frá Fellskoti 11 5,6 8,05
Sær frá Bakkakoti 14 7,7 8,00
Stáli frá Kjarri 39 6,2 8,00
Aron frá Strandarhöfði 11 6,8 8,00
Toppur frá Auðsholtshjáleigu 11 6,1 8,00
Jarl frá Árbæjarhjáleigu II 19 6,2 7,97
Álfasteinn frá Selfossi 15 6,2 7,97
Konsert frá Hofi 37 4,8 7,96
Aðall frá Nýjabæ 12 6,3 7,92
Viktor frá Diisa 11 7,1 7,91
Oliver frá Kvistum 10 6,6 7,90
Arion frá Eystra-Fróðholti 38 6,0 7,89
Spuni frá Vesturkoti 51 6,4 7,89
Viti frá Kagaðarhóli 15 6,0 7,87
Ómur frá Kvistum 36 6,3 7,81
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 11 5,4 7,77
Prins frá Knutshyttan 10 7,0 7,75
Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 12 6,7 7,67

Hver er með hæsta meðaleinkunn fyrir tölt – Smelltu hér

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar