Vökrustu hrossin undan Snillingi frá Íbishóli

  • 27. desember 2021
  • Fréttir

Mynd: Jón Björnsson

Meðaleinkunnir afkvæma stóðhesta sem eiga 4 - 9 dæmd afkvæmi á árinu

Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.

Eiðfaxi tekur nú fyrir eiginleika í hæfileikdómi og skoðum meðaltal einkunna afkvæma stóðhesta sem hafa skila 4-9 afkvæmum í fullnaðardóm á árinu. Næst tökum við fyrir eiginleikann skeið.

Alls eru 62 stóðhestar sem eiga 4-9 dæmd afkvæmi á árinu.

Afkvæmi Snillings frá Íbishóli hlutu hæstu meðaleinkunn fyrir skeið eða 8,63. Alls á hann fjögur dæmd afkvæmi á árinu en meðalaldur þeirra er 6,3 ár.

Næstur í röðinni er Gangster frá Árgerði með 8,30 sem meðaleinkunn afkvæma fyrir skeið en hann á fimm sýnd afkvæmi á árinu og er meðalaldur þeirra 5,1 ár.

 

Listi yfir alla þá stóðhesta sem eiga 4 – 9 fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn fyrir skeið

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Skeið
Snillingur frá Íbishóli 4 6,3 8,63
Gangster frá Árgerði 5 5,1 8,30
Bylur frá Breiðholti 4 5,8 8,13
Markús frá Langholtsparti 4 5,8 8,13
Hersir frá Lambanesi 8 5,8 8,06
Vilmundur frá Feti 6 5,7 7,92
Krókur frá Ytra-Dalsgerði 4 7,5 7,75
Kvistur frá Skagaströnd 4 8,0 7,75
Prins från Knutshyttan 4 7,3 7,63
Rammi frá Búlandi 4 9,0 7,63
Narri frá Vestri-Leirárgörðum 9 5,9 7,61
Aron frá Strandarhöfði 7 7,0 7,57
Sólon frá Skáney 8 6,3 7,50
Forkur frá Breiðabólstað 6 4,3 7,33
Sproti frá Innri-Skeljabrekku 5 5,8 7,20
Sær frá Bakkakoti 8 8,1 7,19
Lykill frá Blesastöðum 1A 6 6,2 7,08
Örn frá Efri-Gegnishólum 6 6,5 7,08
Þórálfur frá Prestsbæ 4 6,0 7,00
Fláki frá Blesastöðum 4 7,3 7,00
Viking från Österåker 8 5,1 6,94
Fróði frá Staðartungu 6 8,3 6,92
Mjölnir frá Hlemmiskeiði 5 7,2 6,90
Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði 4 7,2 6,88
Bragur frá Ytra-Hóli 4 6,2 6,75
Erill frá Einhamri 4 5,6 6,75
Kolskeggur frá Kjarnholtum 9 6,1 6,72
Garri frá Reykjavík 8 6,8 6,69
Aðall frá Nýjabæ 6 5,8 6,67
Mídas frá Kaldbak 4 7,8 6,63
Viktor fra Diisa 6 6,8 6,58
Lexus frá Vatnsleysu 4 6,0 6,50
Nói frá Jakobsgården 4 6,2 6,50
Toppur frá Auðsholtshjáleigu 6 6,1 6,42
Óðinn vom Habichtswald 5 5,3 6,40
Dagfari frá Sauðárkróki 4 6,7 6,38
Atlas frá Hvoli 4 4,8 6,38
Jarl frá Miðkrika 6 6,1 6,33
Oliver frá Kvistum 6 6,1 6,33
Flipi från Österåker 4 8,4 6,25
Framherji frá Flagbjarnarholti 4 6,3 6,13
Stjörnustæll frá Dalvík 4 6,2 6,13
Bragi frá Kópavogi 4 7,0 6,13
Gumi frá Dallandi 5 6,6 6,10
Grímur frá Efsta-Seli 7 6,5 6,07
Hrímnir frá Ósi 6 6,1 6,00
Kjerúlf frá Kollaleiru 7 6,7 5,93
Oddi frá Hafsteinsstöðum 4 5,2 5,88
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum 4 4,3 5,88
Þróttur frá Hvalnesi 4 7,3 5,88
Barði frá Laugarbökkum 6 6,3 5,83
Múli frá Bergi 5 5,0 5,80
Hágangur frá Narfastöðum 9 6,5 5,72
Vaki från Österåker 7 5,3 5,71
Hrymur frá Hofi 4 10,3 5,63
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu 9 7,3 5,39
Straumur frá Feti 7 6,3 5,29
Lord frá Vatnsleysu 5 5,6 5,10
Hraunar frá Hrosshaga 5 4,0 5,00
Sveinn-Hervar frá Þúfu 5 8,6 5,00
Glóðafeykir frá Halakoti 4 6,2 5,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link