Vorkvöld í Reykjavík – Landsmótssigurvegari með nýjan knapa

  • 7. maí 2021
  • Fréttir

Glúmur frá Dallandi mætir með nýjan knapa

Vorkvöld í Reykjavík – Ræktunardagur Eiðfaxa fer fram í Víðidalnum á morgun, laugardaginn 8.maí, og hefst klukkan 17:00.

Dagurinn verður sendur út í beinu streymi og áhorfendur geta mætt á svæðið með sóttvarnir í huga og þær takmarkanir sem í gildi eru, en aðkoma áhorfenda verður betur auglýst þegar Almannavarnir hafa gefið okkur skýr skilaboð um hvernig skuli haga sér.

Hér fyrir neðan er kynning á nokkrum atriðum – Það stefnir í algjöra veislu!

Landsmótssigurvegarinn Glúmur frá Dallandi mætir á svæðið en með nýjan knapa að þessu sinni sem verður gaman að sjá hver er. Glúmur hefur hlotið 8,67 fyrir sköpulag, 8,90 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,81. Hann er undan Orku frá Dallandi og Glym frá Flekkudal. Með honum mætir annar hátt dæmdur stóðhestur frá Dallandi, Konfúsíus,  knapi á honum er Halldór Guðjónsson. Konfúsíus hefur hlotið 8,39 í aðaleinkunn og er undan Konsert frá Hofi og Grósku frá Dallandi.

Róbert frá Kirkjufelli var hæst dæmdi 4.vetra stóðhesturinn í fyrra þegar hann hlaut 8,45 í aðaleinkunn. Hann mætir á laugardaginn með nýjan knapa Sigurð Vigni Matthíasson.

Már frá Votumýri er eftirtektarverður alhliðahestur sem hlaut 8,48 í aðaleinkunn í kynbótadómi á síðasta ári 8,71 fyrir sköpulag og 8,36 fyrir hæfileika. Hann er líkt og glúmur kominn með nýjan knapa í Teiti Árnasyni. Már er undan heiðursverðlaunahrossunum Kiljani frá Steinnesi og Önn frá Ketilsstöðum.

Drumbur frá Víðivöllum fremri hlaut einkunnina 9,5 fyrir bæði hægt tölt og tölt á síðasta ári. Þá hlaut hann 9,0 fyrir brokk, greitt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Hann er undan Óskasteini og Mæru frá Valþjófsstað

Þröstur frá Kolsholti skartar einkunninni 9,5 fyrir þrjá eiginleika í kynbótadómi. Tölt, brokk og vilja og geðslag. Þá hefur hann hlotið 8,80 í B-flokki. Helgi Þór ræktandi og knapi hestsins mætir á laugardaginn.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link