Vorkvöld í Reykjavík – Takk fyrir okkur!

  • 9. maí 2021
  • Fréttir

Viðburðurinn Vorkvöld í Reykjavík – Ræktunardagur Eiðfaxa fór fram í gær í Víðidalnum. Óhætt er að segja að veðurguðirnir hafi verið okkur hliðhollir því sólin skein og þeir áhorfendur sem mættir voru nutu góðs af því, þó svo að norðvestan áttin hafi blásið svölum vindi.

 

Fjöldinn allur af frábærum hrossum komu fram og þökkum við starfsmenn Eiðfaxa knöpum þeirra og eigendum fyrir velvildina og að gera daginn jafn eftirminnilegan og raun bar vitni.
Þá viljum við einnig þakka þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg í undirbúningi og á sýningarstað. Sérstakar þakkir fær Hestamannafélagið Fákur fyrir afnot af völlum og mannvirkjum. Ekki má svo gleyma áhorfendum sem fylgdust víðsvegar að úr heiminum í beinu streymi og á staðnum.

Þeir sem misstu af því sem fram fór þurfa ekki að örvænta því ennþá er hægt að kaupa sér aðgang að viðburðinum og horfa á hann og spá og spekulera. Þeir sem keyptu sér aðgang í gær geta svo horft aftur eins oft og þeir vilja og farið betur yfir það sem fram fór.

 

Hér má nálgast aðgang að Vorkvöldi í Reykjavík

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar