Vormót fært

  • 7. maí 2015
  • Fréttir
Skráning er hafin á íþróttamót hestamannafélagsins Léttis.

Vegna WR móts á Hólum í Hjaltadal hefur Léttir ákveðið að færa Vormót Léttis aftur um eina viku. Mótið verður því haldið 30-31. maí, samkvæmt tilkynningu frá hestamannafélaginu Létti.

Skráning er hafin á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add

Keppt verður í opnum flokki í:

  • Tölti T1
  • Tölti T2 – slaktaumatölt
  • Fjórgangi V1
  • Fimmgangi F1
  • PP2 – Gæðingaskeiði
  • 100m flugskeiði

Skráningargjald er 3500 kr. fyrir hvern hest og lýkur skráningu á miðnætti 27. maí. Fimm dómarar dæma móti, að er fram kemur í tilkynningu frá Létti.

 

Skeiðvallanefnd Léttis

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link