Vornótt í töltið

  • 7. júní 2012
  • Fréttir
Vornótt í töltið

„Í tölti verð ég með nýja sjö vetra hryssu sem heitir Vornótt frá Hólabrekku,“ segir Viðar Ingólfsson tamningamaður á Kvíarhóli. „Ég er að byrja með hana, var raunar aðeins með hana í Meistaradeildinni í vetur og gekk bara sæmilega.“ Þá urðu Viðar og Vornótt í öðru sæti á í tölti 1. flokks á Reykjavíkurmeistaramótinu í maí.  „Svo er ég með hest sem gæti einnig komið til greina í töltið en það er allt óráðið ennþá og best að hafa ekki fleiri orð um það í bili. Þá sýnist mér vera milli tuttugu og þrjátíu hross sem fara í kynbótadóm. Þar á meðal eru áður sýndar mjög góðar hryssur, svo sem Birta frá Mið-Fossum sem var hæst dæmda fimm vetra hryssan árið 2010.“ Þess má geta að Birta fékk 8,36 í aðaleinkunn á Héraðssýningu Vesturlands á dögunum, hún hlaut 8,37 fyrir sköpulag og 8,35 fyrir kosti.

„Ungu tryppin eru mörg mjög góð og frambærileg en svo sem ekkert þeirra sem maður er farinn að sjá sem neinar stjórstjörnur ennþá. Mikilvægasti tíminn er núna, unghrossin breytast mikið og ýmislegt kemur í ljós sem ekki fannst áður, eða þá að þau reynast ekki tilbúin í sýningu. Af þekktum hestum stefni ég með Ugga frá Bergi og Má frá Feti í A-flokk. Í B-flokk stefni ég með Segul frá Mið-Fossum. Þetta er alhliða hestur sem ég hef keppt á í A-flokki og fimmgangi en ætla að leika mér að honum sem klárhesti núna. Einnig Stefni frá Þjóðólfshaga, sex vetra stóðhest, sem er með níu fyrir tölt. Þetta er frábær hestur.“
 
 
Áskrifendur Eiðfaxa geta nálgast þriðja tölublaðið  í vefútgáfunni hér.
Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér.
Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið ingibjö[email protected]. Þá mun hin heiðraða Ingibjörg opna fyrir aðgang að vefútgáfunni.
 
Hægt er að gerast áskrifandi að í Eiðfaxa í gegnum síma 588-2525 eða rafrænt hér.
Þeir sem kjósa frekar að kaupa blaðið í lausasölu get gert það hér í vefversluninni.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link