Vorsýning kynbótahrossa
“Fer fram á Sauðárkróki dagana 29. apríl til 3. maí. Byggingadómar fara fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum en hæfileikadómar á vellinum Fluguskeiði austan við reiðhöllina. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Opnað verður fyrir skráningu mánudaginn 15. apríl og síðasti skráningardagur og greiðsludagur er föstudaginn 19. apríl. Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500 kr en fyrir byggingadóm 13.500 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma aðeins til greina ef látið er vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin [email protected] og [email protected] . Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í bygginga- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH