WorldTölt frestað fram í apríl
Sú ákvörðun hefur nú verið tekin að fresta hinni vinsælu innanhúskeppni, WorldTölt, fram í apríl á þessu ári. Þetta kemur fram í viðtali Isibless við Bo Hansen, skipuleggjanda WorldTolt.
Keppnin átti upphaflega að fara fram í febrúar en núverandi samkomutakmarkanir í Danmörku bjóða einfaldlega ekki upp á þann möguleika að halda mótið þá. Því hefur stefnan verið sett á helgina 16.-17. apríl með von um að aðstæður til sýningahalds verði aðrar og betri þá. Allar keppnisskráningar sem höfðu borist munu haldast óbreyttar og þó ómögulegt sé að spá fyrir um hvort áhorfendur verði leyfðir í höllinni í apríl, þá verður WorldTölt aðgengilegt í beinu streymi og stefnt á að streyma frá öllum keppnisgreinum og stóðhestakynningu. Nánari upplýsingar um það verða birtar þegar nær dregur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH