WR mót Sörla
“Á morgun 7. maí hefst skráning á WR íþróttamót Sörla og stendur hún í viku.
Mótið hefst svo föstudaginn 17. maí. Hlökkum til að sjá sem flesta á
Sörlastöðum.
Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Tölt T1 – Tölt T4 – Fimmgangur F1 –
Gæðingaskeið
1.flokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7 -Fimmgangur F2 –
Gæðingaskeið
2.flokkur: Fjórgangur V2 –Fjórgangur V5 Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7 –
Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7 – Fimmgangur F2
– Gæðingaskeið – Fimikeppni A2
Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7 – Fimmgangur F2
– Gæðingaskeið – Fimikeppni A
Barnaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T7 –Fimikeppni A
100m skeið – 150m skeið – 250m skeið
Athugið að Fjórgangur V5 er í skráningarkerfinu fjórgangur annað og Tölt T4
er Tölt T2 í skráningarkerfinu.
Skráningargjald. Ungmenni og fullorðinsflokkar 4.000 kr. Skeið, barna- og
unglingaflokkar 3.000 kr.
Skráning fer fram á sportfengur.com undir Skráningarkerfi. Þar skal velja
hestamannafélagið Sörli og svo velja viðburðinn .
Þegar búið er að fylla inn upplýsingar og skrá í vörukörfu þarf að smella á
vörukörfuna til að fara í greiðslukerfið. Þegar greiðslu er lokið ætti
kvittun að berast með tölvupósti og staðfestir hún skráninguna,“ segir í tilkynningu frá Sörla
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH