WR Suðurlandsmót og Skeiðleikar
WR Suðurlandsmót 2021
WR Suðurlandsmót 2021 verður haldið um næstu helgi 20-22.ágúst og fer fram á Rangárbökkum við Hellu.
Skráning er hafin og lýkur þriðjudagskvöldið 17.ágúst kl 23:59. Endilega verið tímanlega í að skrá.
Öll skráning fer fram á sportfeng.
Fimmtu skeiðleikar Skeiðfélagsins fara fram samhliða WR Suðurlandsmótinu og fer því árangur af þeim inná WR lista í skeiðgreinum. Skráning fer fram á sama stað og allar hinar greinarnar.
Allar afskráningar fara fram í síma 8637130.
Ef vandræði eru við skráningu er hægt að hafa samband í síma 8637130 áður en skráningarfrestur rennur út.
Fylgist vel með öllum sóttvaranarreglum og pössum öll vel upp á eigin sóttvarnir, spritt, grímur og allt sem hjálpar til.
Möguleiki er á að breytingar geti orðið með mjög stuttum fyrirvara svo endilega fylgist vel með.
Mótanefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH