Yfirburðasigur Sigurðar og Loka
Sigurður Sigurðarson vann gæðingafimi Meistaradeildar með yfirburðum. Loki frá Selfossi var klárlega flottasti hestur kvöldsins og reið Sigurður úrslitin eins og sannur meistari. Útgeislunin, fasið og fótaburðurinn ásamt frábærri reiðmennsku var það sem skilaði þessum sigri í kvöld.
Guðmundur og Hrímnir urðu í öðru sæti líkt og í fjórgangnum, en sýning þeirra var talsvert betri en í forkeppninni utan þess að stökkið misheppnaðist því að Hrímnir kýrstökk heila langhlið. Það kom ekki að sök því að einungis eru dæmdar bestu þrjár gangtegundirnar.
Olil var með mjög örugga sýningu en samt virtist skorta talsvert á þá útgeislun og frjálsræði í fasi eins og einkenndi þá Loka og Hrímni. En ekkert skorti á flottheitin hjá þeim Þorvaldi og Stjörnu sem enduðu fjórðu, þó svo að hún búi ekki yfir eins góðum gangtegundum og efstu þrjú hrossin utan þess að töltið er klárlega með því besta sem sýnt var í kvöld.
Það kom mörgum á óvart að þeir Sigurbjörn og Jarl skildu ná inn í úrslit enda sýndi það sig að hann átti aldrei möguleika á móti hestunum fyrir ofan sig þó svo að aldrei sé hægt að afskrifa Sigurbjörn. Þeir Jarl enduðu fimmtu og voru talsvert frá hestunum í 2-4 sæti.
Úrslit gæðingafiminnar urðu:
Úrslit
1. Sigurður Sigurðarson – Loki frá Selfossi – 8,30
2. Guðmundur F. Björgvinsson – Hrímnir frá Ósi – 7,77
3. Olil Amble – Kraflar frá Ketilsstöðum – 7,74
4. Þorvaldur Árni Þorvaldsson – Stjarna frá Stóra-Hofi – 7,70
5. Sigurbjörn Bárðarson – Jarl frá Mið-Fossum – 7,54
Það er erfitt fyrir leikmann að gera sér grein fyrir hvað er rétt og hvað er rangt í þessari keppni en eins og fyrr sagði var hægt að setja spurningarmerki við hvort Viðar Ingólfsson og Már frá Feti eða Árni Björn Pálsson og Stormur frá Herríðarhóli hefðu frekar átt erindi í úrslit en Sigurbjörn og Jarl. Bæði þessi pör áttu frábært kvöld með faglegar og fágaðar sýningar. Már hefur sjaldan verið eins heillandi og í kvöld en líklegt má telja að þeir félagar taki stefnuna á HM2013 í Berlín. Íslandsmeistarinn í tölti Stormur er með fasmestu hestum en líklegt má telja að aðeins hafi skort upp á gæði annarra gangtegunda en tölts til að blanda sér meðal þeirra allra fremstu.
6 Viðar Ingólfsson Már frá Feti 7,4
7 Jokob S. Sigurðsson Eldur frá Köldukinn 7,11
7 Árni Björn Stormur frá Herríðarhóli 7,11
9 Anna Valdimars Krókur frá Ytra-Dalsgerði 6,99
10 Hulda Gústafs Ketill frá Kvistum 6,91
11 Ragnar Tómasson Sleipnir frá Árnanesi 6,88
12 Eyjólfur Þorsteinsson Klerkur frá Bjarnanesi 6,82
13 Ólafur B Ásgeirsson Hugleikur frá Galtanesi 6,53
14 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Héðinn-Skúli frá Oddhóli 6,52
15 Reynir Örn Pálmason Baldvin frá Stangarholti 6,51
16 Gústaf Ásgeir Naskur frá Búlandi 6,49
17 Sigurður V. Matthíasson Svalur frá Litlu-Sandvík 6,47
18 John Kristinn Kraftur frá Blesastöðum 1A 6,41
19 Bergur Jónsson Ljóni frá Ketilsstöðum 6,37
20 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Ösp frá Enni 6,35
21 Elvar Þormarsson Skuggi frá Strandarhjáleigu 5,83
22 Ævar Örn Veigur frá Eystri-Hól 5,71
23 Anna Björk Ólafsdóttir Glúmur frá Svarfhóli 5,12
24 Daníel Ingi Smárason Silfur-Daddi frá Lækjarbakka 4,91
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH