Yfirdýralæknir varar við tannröspunum

  • 14. mars 2013
  • Fréttir
Yfirdýralæknir varar við tannröspunum

„Við notkun á hestum til reiðar ber okkur að aðlaga búnað og reiðmennsku að munni hestsins, þannig að ekki hljótist skaði af, fremur en að sverfa tennur hestsins.“
Þetta kemur fram í grein sem birt er á vef Matvælastofnunar, sjá HÉR

Jens Einarsson

Ljóst er að yfirdýralæknir hefur markað skýra stefnu varðandi tannraspanir, sem gengur í berhögg við þann „tannröspunariðnað“ sem við lýði hefur verið í reiðhestaheiminum undanfarna áratugi, bæði hér á landi sem annars staðar. Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma, hefur á undanförnum árum bent á að tannraspanir á hrossum hér á landi séu óhóflegar og oftar en ekki óþarfar. Byggir hún skoðun sína á samstarfi við sænsku dýralæknana Torbjörn Lundström og Ove Wattle, sem báðir eru sérfræðingar við Dýralæknaháskólann í Uppsölum í Svíþjóð og hafa fengið viðurkenningar fyrir störf sín og rannsóknir á þessu sviði.

Svo virðist sem fleiri en færri dýralæknar hér á landi séu ósammála Sigríði, en allnokkur hvellur varð eftir ráðstefnu um velferð hesta sem Landssamband hestamannafélaga hélt síðastliðið haust. Þar kynnti Sigríður ítarlega niðurstöður eigin rannsókna, sem hún taldi sýna glögglega að tannraspanir hafi ekki hjálpað keppnishrossum á Landsmótum og Íslandsmótum, sem voru sum með verulega áverka í munni, þrátt fyrir að hafa verið röspuð.

Ljóst er að tannlæknar hafa verulega hagsmuni af því að raspa tennur í hrossum. Sumir raspa nokkur hundruð hross á ári og innkoman getur hlaupið á milljónum. Framleiðendur tækja til tannröspunar eiga einnig hagsmuna að gæta. Það er því mikill þrýstingur á að viðhalda þeirri hefð sem skapast hefur í tannröspunum á undanförnum áratugum. Þeim dýralæknum hefur hins vegar fjölgað á síðustu misserum sem fallast á kenningar þeirra Torbjörns Lundström og Ove Wattle, en samkvæmt þeim er ljóst að mörg alvarleg mistök hafa verið gerð í tannröspunum sem engan vanda hafa leyst en valdið mörgum hrossum þjáningum.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link