Yfirlýsing frá Andrési Pétri Rúnarssyni
Andrés Pétur Rúnarsson eigandi verslunar sem nýlega opnaði í húsnæði gamla hundahótelinu í Víðidal, Brekknaási 8, sendir frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Enn reynir formaður Fáks að afvegaleiða fólk
Í ljósi yfirlýsingar frá stórn Fáks varðandi “Hundahótelið í Víðidal”. Þá ber fyrst að leiðrétta að skv. deiliskipulagi er umrædd lóð deiliskipulögð sem “Dýraspítali Watsons” en ekki sem dýraspítali og hundahótel en og stjórn Fáks heldur fram.
Það er alveg rétt hjá stjórninni og engin hefur haldið öðru fram, að Reykjavíkurborg og Lögreglustjóri gefa út leyfi. Það vita það hinsvegar allir að þegar sótt er um ýmis leyfi þá þarf samþykki t.d. nágranna og svo frv. Þar sem athafnasvæði Fáks er allt í kringum umrædda lóð þá telur Reykjavíkurborg að það auðveldi málið í heild sinni að Fákur gefi grænt ljós á umrædda starfsemi, sem þeir hafa hafnað.
Fákur getur því hvorki gefið út leyfi né hafnað þeim, en þeir geta hinsvegar hjálpað málinu í gegn með því að gefa út jákvæða umsögn, sem þeir hafa hafnað.
Í dag er í gangi ósk um breytingu á deiliskipulagi og væntanlega verður Fákur beðin um umsögn varðandi þá breytingu. Í ljósi yfilýsingar formanns Fáks á Pressan.is að “allir meðfylgjandi opnun kaffihúss” og þó vildi hann ekki gefa um sína afstöðu, því er ljóst að hann fellur ekki undir “alla” J Deiliskipulagsbreyting tekur nokkra mánuði og verður því ekki hægt að fá sér kaffi og kleinu eða einn kaldan um sinn í Hestamiðstöðinni (Hundahótelinu)
Hinsvegar hefur Ástund opnað hestavöruverslun með stórri kaffistofu og er fólk velkomið að kíkja í verslunina og fá sér heitt kaffi í boði húseigenda.
Formaður Fáks hefur haldið því á lofti að byggja eigi 1200 fm., hús á lóðinni. Það á ekki við rök að styðjast. Húsið á lóðinni er 130 fm., og er hugmyndin að opna þar hestamiðstöð, eða félagsmiðstöð fyrir hestamenn af fákssvæðinu og frá öðrum hestamannafélögum í kring. Í Hestamiðstöðinni stendur til að reka, hestavöruverslun, kaffihús og bar, ásamt hestaleigu með hestaferðir.
Maður spyr sig hver ástæðan fyrir afstöðu gömlu stjórnar Fáks sé ? Ef rýnt er í viðtal formanns Fáks í Fáksblaðinu og skoðaðar eru fundargerðir Fáks áttar maður sig á staðreyndum málsins. Formaðurinn stefnir með Fák í “business”, nú þegar hefur verið opnaður reiðskóli í samkeppni með tvo aðra reiðskóla í dalnum. Til stendur að opna hestavöruverslun ásamt kaffihúsi og bar í anddyri Reiðhallarinnar skv. fundargerðum.
Að lokum skulum við ræða aðeins deiliskipulag. Reiðhöllin í Víðidal er deiliskipulögð sem “reiðhöll”, ekki verslun, kaffihús, veislusalur og svo frv., Dýraspítalinn Víðidal er deiliskipulagður sem “dýraspítali” en þar er nú rekin verslun. Ef stjórn Fáks og Reykjavíkurborg vilja fá dýraspítala á umræddri lóð þá er það bara alveg sjálfsagt. Húsið sem er núna á lóðinni stenst reyndar ekki kröfur sem eru gerðar til slíks spítala í dag. Því er ljóst að ef svo fer þá þarf að byggja nútíma spítala með skurðstofu, sjúkrahóteli og svo frv..
Ef þetta er eins og stjórn Fáks heldur fram, ekki á þeirra könnu er þá ekki einfalt að þeir gefi út litla yfirlýsingu um að þeir setji sig ekki upp á móti hestamiðstöð í húsinu með kaffihúsi, bar, hestavöruverslun og hestaleigu?“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH