Ylfa Guðrún Reykjavíkurmeistari í fjórgangi (V2) ungmenna

  • 5. júlí 2020
  • Fréttir

Nú rétt í þessu lauk A-úrslitum í fjórgangi (V2) í ungmennaflokki í brakandi blíðu í Víðidalnum, það er um að gera fyrir alla sem heima sitja að gera sér ferð í Víðidalinn og fylgjast með spennandi keppni, réttast er þó að smyrja á sig vel af sólarvörn.

Ylfa Guðrún stóð uppi sem siguervegari í þessum flokki með 6,57 í einkunn en hún sat á Glanna frá Hofi og varð hún einnig Reykjavíkurmeistari.

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Glanni frá Hofi 6,57
2 Katrín Ósk Kristjánsdóttir / Höttur frá Austurási 6,53
3-4 Ólöf Helga Hilmarsdóttir / Heiða frá Skúmsstöðum 6,23
3-4 Þuríður Ósk Ingimarsdóttir / Fálki frá Hólaborg 6,23
5 Kristófer Darri Sigurðsson / Aría frá Holtsmúla 1 5,97

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link