Þráinn hlýtur Orrabikarinn á Landsmóti
Þráinn stóð efstur 6.vetra stóðhesta á Landsmóti í Reykjavík árið 2018 og stendur nú eftur 1.verðlauna stóðhesta fyrir komandi Landsmót
Nýtt kynbótamat birtist á worldfeng í morgun og því ljóst hvernig röðun stóðhesta sem hljóta afkvæmaverðlaun á Landsmóti verður.
Fyrir helgi birtist frétt á vef Eiðfaxa um þá stóðhesta sem náð höfðu afkvæmafjölda til þess að hljóta 1.verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti. Nú er ljóst að átta stóðhestar hafa náð þeim frábæra árangri að eiga rétt á því að mæta með afkvæmahóp á Landsmót.
Efstur þeirra er Þráinn frá Flagbjarnarholti og verður hann því handhafi Orrabikarsins á komandi Landsmóti. Hann á 34 afkvæmi með fullnaðardóm og er með 134 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins.
Hér fyrir neðan má sjá röð þeirra stóðhesta sem hljóta 1.verðlaun fyrir afkvæmi raðað eftir aðaleinkunn kynbótamatsins.
| Nafn | Aldur | Fjöldi afkvæma | A.e. Kynbótamats |
| Þráinn frá Flagbjarnarholti | 12 | 34 | 134 |
| Adrían frá Garðshorni | 11 | 20 | 132 |
| Ísak frá Þjórsárbakka | 11 | 15 | 124 |
| Dagfari frá Álfhólum | 12 | 17 | 121 |
| Snillingur frá Íbishóli | 14 | 16 | 121 |
| Hreyfill frá Vorsabæ | 16 | 40 | 118 |
| Lexus frá Vatnsleysu | 15 | 15 | 116* |
| Ljósvaki frá Valstrýtu | 14 | 23 | 114* |
*Hljóta verðlaun á grundvelli aðaleinkunnar án skeiðs
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH