Hestamannafélagið Sprettur Sveitarfélag styrkir hestamenn

  • 24. september 2024
  • Tilkynning
Afrekssjóður Garðabæjar styrkir tvo unga Sprettara

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar hefur veitt tveimur ungum Spretturum myndarlegan styrk úr Afrekssjóði Garðabæjar en báðar eru þær búsettar í Garðabæ.

Guðný Dís Jónsdóttir og Elva Rún Jónsdóttir hlutu styrk að upphæð 140.000 kr. hvor vegna afreka sinna á síðastliðnu tímabili auk 20.000 kr.  ferðastyrks hvor. Þær Guðný Dís og Elva Rún kepptu báðar fyrir hönd Íslands á Norðurlandamótinu í ágúst. Guðný Dís er Íslandsmeistari í fjórgangi í ungmennaflokki og Elva Rún er Íslandsmeistari í fjórgangi og tölti.

“Það getur verið kostnaðarsamt að stunda íþróttir og vera í fremstu röð. Styrkurinn er viðleitni sveitarfélagsins til að styðja við afreksíþróttamenn fjárhagslega vegna kennslu og þjálfunar. Sennilega er þetta í fyrsta sinn sem hestaíþróttamenn sækja um í Afrekssjóð Garðabæjar og hljóta styrk,” segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Spretti en þar er einnig bent á að Kópavogsbær auglýsir umsóknir í sinn afrekssjóð um mánaðarmótin október/nóvember.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar