Íslandsmót járningarmanna!
Nú er komið að þvi sem allir hafa beðið eftir, Íslandsmót járningarmanna!
Helgina 4-5 desember fer fram Íslandsmót ásamt mörgum áhugaverðum fyrirlestrum í Íshestum Sörlaskeið 26 Hafnarfirði.
Við fáum til okkar í ár alveg frábæra fyrirlesara og förum djúpt í hin ýmsu mál bransans.
Hjalti Guðmundsson kemur og verður með fyrirlestur fyrir okkur. Hann kennir járningar á Wången skólanum í Svíþjóð. Hjalti ætlar að tala um réttleika og jafnvægi í bæði Íslenskum og erlendum ganghestum.
Dr. Susanne Braun er þýskmenntaður dýralæknir með sérþekkingu á hestum og með viðbótarmenntun í hnykkingum fyrir hesta. Hún hefur starfað á Íslandi frá árinu 2005 og hefur víðtæka reynslu af greiningu og meðferð stoðkerfisvandamála hjá hestum. Hún hefur einnig langa reynslu af íslenska hestinum, þjálfun og dómgæslu í hestaíþróttum, bæði á landsvísu og alþjóðavettvangi.
Susanne fer meðal annars yfir áhrif rangar fótstöðu. Áhrif mismunandi undirlags á hreyfifræði og fótahreyfingar á hringvöllum og kynbótavöllum. Ásamt miklu meira spennandi efni.
Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur og einn af okkar fremstu kynbótadómurum. Þorvaldur ætlar að fara yfir þróun ágripa.
Sigurður Sæmundsson hestamaður og járningamaður.
Siggi Sæm ætlar að fara yfir þróun á járningum á Íslandi, og sinni reynslu.
Drög af dagskrá
Föstudagur
9:00 Susanne
11:00 Hjalti
12:00 matur
13:00 Hjalti/sýnikennsla
15:00 dagskrá lok
Laugardagur
9:00 Þorvaldur
10:30 Sigurður
12:30 matur
14:00 Íslandsmót
Hér fer alltaf fram æsispennandi keppni. Dómararnir eru Hjalti Guðmunds og Siggi Sæm.
Keppnin fer fram á gamla mátan, Keppt verður í tveim flokkum,
Meira vanir
Minna vanir.
Hver og einn járnar einn hest.
Ó. Johnson – ISAM sér okkur fyrir
skeifum, fjöðrum, sköflum og vinningum.
Skráning fer fram á email félagsins.
Skráningarfrestur er til 2. Des
[email protected]
Margareterhof er selt
Hver er þín framtíðarsýn fyrir Landsmót?