Hestamannafélagið Sörli Gæðingaveisla Sörla

  • 14. ágúst 2026
  • Tilkynning
Skráning er opin og lýkur á sunnudag

Mótanefnd Sörla ætlar að halda Gæðingaveislu Sörla 20. – 23. ágúst á Hraunhamarsvellinum.

„Sækið gæðingana ykkar, dustið af reiðtygjunum og takið þátt í einu af síðustu mótum tímabilsins – Hinu glæsilega móti Sörla – GÆÐINGAVEISLUNNI !!!“

Skráning er hafin á Sportfeng og stendur til 16. ágúst.

Keppt verður í:

  • A- og B-flokki – opinn flokkur (gæðingaflokkur 1) og áhugamenn (gæðingaflokkur 2)
  • A- og B-flokki ungmenna
  • Unglingaflokki og barnaflokki gæðinga
  • 100m skeiði
  • Gæðingatölti fullorðinna (opinn og áhugamenn) og ungmenna.

Skráningargjald:

  • Börn & unglingar: 7.500 kr.
  • Aðrir flokkar: 9000 kr.

Fyrirspurnir & afskráningar: motanefnd@sorli.is

„Mundu: Eftir að skráningarfresti líkur tvöfaldast gjaldið – og eftir að ráslistar eru gefnir út verður ekki hægt að bæta við keppendum á mótið. Við lofum góðri stemningu, mögnuðum keppnisanda og glæsilegustu mótsaðstöðu sem völ er á. Ekki missa af þessu tækifæri – sjáumst á vellinum!“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link