Hestar sem sofa betur halda þeir lengur út ?

  • 19. nóvember 2026
  • Utan úr heimi

Hestur snertir fötu á hvolfi í prófinu. Mynd: Hämäläinen o.fl., Scientific Reports (2026), CC BY 4.0.

Svefn er hluti af velferð hestsins og getur haft áhrif á þjálfun

Góður nætursvefn gæti skipt hestinn meira máli í þjálfun en margir gera sér grein fyrir. Ný rannsókn frá Háskólanum í Helsinki bendir til þess að hestar sem fá meiri REM-svefn haldi lengur út þegar þeir þurfa að breyta lærðri hegðun. Þeir gera ekki færri mistök en gefast síður upp. Niðurstöðurnar birtust í vísindaritinu Scientific Reports fyrr á árinu.

Draumsvefninn krefst þess að hesturinn leggist

Hestar geta blundað standandi. REM-svefn, sem oft er kallaður draumsvefn, ná þeir hins vegar aðeins þegar þeir leggjast og slaka alveg á vöðvunum. Fullorðnir hestar sofa einungis nokkrar klukkustundir á sólarhring og talið er að þeir þurfi um hálftíma af draumsvefni á dag.

Leggist hesturinn ekki getur hann lent í svefnskorti. Þýsk rannsókn hefur sýnt að slíkir hestar geta fallið í draumsvefn standandi og hnigið niður. Það getur valdið alvarlegum meiðslum.

Einfalt próf í heimahögum

Finnsku rannsakendurnir vildu kanna hvort munur á svefni gæti skýrt mun á lærdómsgetu hesta. Í því skyni hönnuðu þeir nýtt próf sem leggja má fyrir í hólfi sem hesturinn þekkti. Til þess þurfti aðeins tvo menn og einfaldan búnað.

Sextán reiðskólahestar tóku þátt, flestir heitblóðshestar þar sem meðalaldur var 15 vetra. Fyrst lærðu hestarnir að snerta fötu á hvolfi og fengu þá gulrót sem umbun. Því næst voru settar upp tvær fötur en aðeins önnur gaf umbunina. Þegar hesturinn hafði áttað sig á hvor fatan það var, snerist reglan við og hann þurfti að velja hina. Svona gekk það koll af kolli í allt að hálftíma.

Svefn hestanna var skráður á nóttunni í fimm tveggja sólarhringa lotum yfir sex vikur. Hestarnir þurftu að liggja með slakan háls og það notað sem mælikvarði á draumsvefn. Svefninum var ekki raskað á neinn hátt og enginn hestanna sýndi merki um svefnskort.

Hesturinn valdi á milli fatna á hvolfi sem lágu ofan í bíldekkjum. Þegar hann hafði lært hvor fatan gaf umbun þurfti hann að velja hina. Mynd: Hämäläinen o.fl., Scientific Reports (2026), CC BY 4.0, breytt.

Skildu verkefnið en gáfust fyrr upp

Fimmtán af sextán hestum luku prófinu með að minnsta kosti þremur viðsnúningum. Flestar villurnar urðu snemma og því virtist erfiðast að laga sig að fyrstu breytingunum.

Draumsvefninn var afar misjafn milli hestana. Tíu fengu minna en 30 mínútur á nóttu en sex náðu 30 mínútum eða meira. Þeir sem sváfu lengur náðu fleiri viðsnúningum og entust betur.

Svefninn tengdist þó ekki fjölda villna. Hestarnir sem sváfu minna skildu verkefnið jafn vel en gáfust fyrr upp. Þeir voru einnig líklegri til að sýna merki um pirring.

„Þetta bendir til þess að REM-svefn hjá hestum tengist áhugahvöt og þrautseigju,“ segir Mira Hämäläinen, dýralæknir og aðalhöfundur rannsóknarinnar, í tilkynningu frá Helsinki-háskóla. Að hennar sögn lærðu hestarnir einföld verkefni fljótt en áhrif stutts svefns komu fyrst í ljós þegar verkefnin lengdust og þyngdust.

Lítið úrtak en þörf áminning

Rannsakendurnir bentu sjálfir á að úrtakið væri lítið og að aðeins sex hestar hefðu verið í hópi þeirra sem sváfu lengur. Rannsóknin sýnir tengsl en ekki orsakasamband. Því er ekki hægt að fullyrða að meiri svefn geri hesta þrautseigari heldur bara áætla.

Niðurstöðurnar minna þó á að svefn er hluti af velferð hestsins og getur haft áhrif á þjálfun. Hestar þurfa að finna til öryggis og hafa pláss og gott undirlag til að leggjast. Eldri hestar með stirða liði forðast stundum að leggjast og vert er að fylgjast með hvort hesturinn nái að hvílast.

Heimild: Hämäläinen, M.J., Brotherus, I.L., Wigren, H.M. o.fl. (2026). Effect of horse sleep behavior on performance in a field-side spatial reversal learning test. Scientific Reports 16, 4265.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link