Ásmundur er íþróttaknapi ársins
Ásmundur Ernir Snorrason er íþróttaknapi ársins. Aðrir tilnefndir voru Árni Björn Pálsson, Gústaf Ásgeir Hinriksson, Arnhildur Helgadóttir og Jakob Svavar Sigurðsson
Íþróttaknapi ársins 2026 er Ásmundur Ernir Snorrason en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíó. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:
„Ásmundur varð Landsmótssigurvegari í tölti á Hlökk frá Strandarhöfði þegar þau fóru í hæstu tölur sem gefnar hafa verið í tölti, 9,27 í forkeppni og 9,78 í úrslitum. Ásmundur er jafnframt samanlaðgður Íslandsmeistari í fjórgangsgreinum á Hlökk. Ásmundur og Hlökk eru efst á FEIF world ranking í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum. Ásmundur var í þriðja sæti í fimmgangi á Íslandsmóti á Aski frá Holtsmúla auk þess sem þeir sigruðu sömu grein á Reykjavíkurmeistaramóti.“
Eiðfaxi óskar Ásmundi Erni innilega til hamingju með árangur ársins!
Aðrir tilnefndir voru:
- Arnhildur Helgadóttir
- Árni Björn Pálsson
- Gústaf Ásgeir Hinriksson
- Jakob Svavar Sigurðsson
Margareterhof er selt