Landsamband hestamanna Jakob Svavar knapi ársins

  • 21. nóvember 2026
  • Fréttir

Jakob Svavar Sigurðsson er knapi ársins 2026

Þrefaldur Íslandsmeistari og Landsmótssigurvegari

Knapi ársins 2026 er Jakob Svavar Sigurðsson en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíói. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Jakob Svavar átti stórkostlegt ár á keppnisbrautinni. Jakob Svavar sigraði B flokk á Landsmóti hestamanna á Kór frá Skálakoti með einkunnina 9,19. Þeir tilltu sér á toppinn eftir sérstaka forkeppni, sýndu mikið öryggi og voru á toppnum allt til enda. Jakob var jafnframt í 2.sæti í tölti á Landsmóti hestamanna á Skarpi frá Kýrholti og í 5 sæti í A flokki á Goða frá Bjarnarhöfn. Jakob Svavar er líka þrefaldur íslandsmeistari. Hann sigraði tölt á Skarpi frá Kýrholti með 9,61 í einkunn en þeir sigruðu einni fjórgang með 8,20 í einkunn. Jakob sigraði slaktaumatölt á Hrefnu frá Fákshólum með 8,88 í einkunn.“

Eiðfaxi óskar Jakobi Svavari innilega til hamingju með árangur ársins.

Aðrir tilnefndir í þessum flokki eru þeir knapar sem tilnefndir voru í fullorðinsflokki

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link