Garðshorn á Þelamörk keppnishestabú ársins
Garðshorn á Þelamörk keppnishestabú ársins 2026.
Keppnishestabú ársins 2026 er Garðshorn á Þelamörk en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíói. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:
„Garðshorn á Þelamörk hefur um árabil ræktað hross í fremstu röð. Frá búinu kemur einn afkastameski skeiðhestur samtímans, Kastor frá Garðshorni á Þelamörk. Kastor sigraði 250 metra skeið á Landsmóti hestamanna auk þess sem hann var í 4 sæti í A flokki gæðinga á sama móti. Adrían frá Garðshorni á Þelamörk er fasmikill og mjúkur klárhestur sem endaði annar í B flokki á Landsmóti hestamanna.“
Eiðfaxi óskar ræktendunum Agnari Þór Magnússyni og Birnu Tryggvadóttur innilega til hamingju með árangur ársins!
Önnur bú tilnefnd:
- Garðshorn á Þelamörk
- Íbishóll
- Strandarhjáleiga
- Strandarhöfuð
- Þúfur
Margareterhof er selt