„Þú þarft að treysta tryppinu“

  • 26. nóvember 2026
  • Fréttir

Inga María S. Jónínudóttir á kennslusýningu á Mið-Fossum. Hjá henni byrjar traustið hjá þjálfaranum, ekki hestinum. Ljósmynd: Randi Holaker

Frumtamninganámskeið Ingu Maríu S. Jónínudóttur hafa slegið í gegn víða um land. Hugmyndin að námskeiðunum fyrir norðan kviknaði í sláturhúsinu á Sauðárkróki.

Það er ekki á hverjum degi sem vinsælt reiðnámskeið á rætur að rekja til sláturhússins. Sú er þó raunin með frumtamninganámskeið Ingu Maríu S. Jónínudóttur. Inga María er menntaður reiðkennari frá Hólaskóla og hefur áratuga reynslu af frumtamningum. Fyrsta námskeiðið hélt hún hjá Herði í Mosfellsbæ og síðan hafa námskeiðin borist norður í land, austur á land og vestur í Búðardal. Árangurinn talar sínu máli. Eftir átta daga eru allir þátttakendur komnir á bak. Ótrúlega margir ríða lausir í hringgerðinu og sumir eru farnir að ríða út fyrir það.

Snilldarhugmynd í sláturtíðinni

Fyrsta námskeiðið var haldið árið 2023. Þá bað þáverandi yfirkennari Hestamannafélagsins Harðar Ingu Maríu að koma og halda frumtamninganámskeið. Sex nemendur tóku þátt og námskeiðið gekk mjög vel. Þar var meðal annars fólk sem hafði ekki verið lengi í hestamennsku.

Haustið 2024 hóf Inga María störf í sláturhúsinu á Sauðárkróki. Þar er fé slátrað í september og október, einmitt á þeim tíma sem mikið er um námskeið. Það var því að mestu úr myndinni að fara burt að kenna. Þá kom upp það sem hún kallar sjálf snilldarhugmynd. Hún ákvað að halda námskeið á Króknum og Akureyri þar sem stutt var að fara og hægt að kenna samhliða annarri vinnu. Fyrstu námskeiðin fyrir norðan voru haldin á báðum stöðum þetta sama haust.

Haustið eftir sneri hún aftur í sláturhúsið og samdi þá um svigrúm til að sinna líka Reiðmanninum og einu til tveimur námskeiðum erlendis. Á Sauðárkróki og Akureyri er kennt tvö kvöld í viku í fjórar vikur. Þegar hún fer lengra kennir hún tvisvar sinnum fjóra daga og það hefur gefist vel.

Tvö hringgerði og þá fluggengur þetta

Inga María tekur ekki fleiri en tíu þátttakendur í einu. Þar sem því verður við komið hittist hópurinn daginn áður. Þá fer hún yfir búnaðinn og í grófum dráttum hvað lögð verður áhersla á. Annars er fyrsti tíminn einkatími svo hún geti aðstoðað hvern og einn í upphafi og sýnt vinnubrögðin. Eftir það eru tveir saman í 40 mínútna tímum. Tímarnir styttast oft þegar líður á námskeiðið.

Aðstæður eru misjafnar milli staða og þar skipta hringgerðin miklu máli. Á Sauðárkróki var ekkert hringgerði og þurfti að notast við staura og band. Á Akureyri voru hins vegar tvö hringgerði og þar komust nemendur lengra með hestana sína. Inga María segir mikilvægt að hafa góð hringgerði á svona námskeiðum og helst tvö ef þau eru í boði. „Þá fluggengur þetta.“

Flestir þátttakendur eru áhugafólk á öllum aldri með eigin hross en atvinnufólk hefur líka slæðst með. Sumir hafa komið tvö haust í röð til að fá aðstoð með tryppin sín. Námskeiðin eru ekki ætluð börnum og unglingum þótt undantekning hafi verið gerð.

Tryppin mæta misjafnlega undirbúin. Algengt er orðið að tryppi séu fortamin og mýld veturgömul. Inga María hefur þó fengið þónokkuð af tryppum sem voru ekki mýld fyrr en daginn fyrir námskeiðið eða sama dag og það hófst. Það hefur gengið ótrúlega vel þótt eyrnastyggð beri ef til vill meira á hjá þeim.

Á hinum enda skalans eru tryppi sem hafa fengið of mikið dekur. Inga María segir meira bera á því að tryppi séu orðin of „kjössuð“. Þau ganga á mann og yfir mann og það þarf að stoppa þau af. „Það eru erfiðustu tryppin að temja finnst mér.“

baki, við teymingu og bundið við jörðu. Svipmyndir frá frumtamninganámskeiðum Ingu Maríu.Ljósmynd: Úr einkasafni Ingu Maríu

Stjórnað án beislis

Það sem kemur þátttakendum mest á óvart er hversu fljót hrossin eru að átta sig á hálsbandinu. Einnig að hægt sé að ríða þeim á bandmúl með vaðnum og skutla vaðnum fram fyrir til að skipta um hönd. „Mér finnst þetta sjálfri mjög gaman og ég kem því þarna á framfæri hvað er hægt að stjórna þeim mikið án þess að nota beislið.“

Aðaláherslan er á að tryppin elti tauminn og séu vanin við. Þau eiga að vera mjög létt á taum og fylgja honum þegar leiðin er sýnd fram eða til hliðar. Hún kennir þeim líka að standa kyrr þegar taumurinn liggur niðri. Á ensku kallast það „ground tie“ en Inga María þýðir það sem að vera „bundinn við jörðu“. Tryppin eru vanin við vaðinn og fætur teknir upp með honum.

Mjög fljótt kennir hún nemendunum að setja upp val fyrir hestinn. Velji hann það sem þjálfarinn vill fær hann góða umbun en annars þarf hann að hreyfa fæturna meira. Ingu Maríu grunar að sú vinna kenni mannfólkinu ekki síður en hrossunum. „Þetta kennir sennilega þjálfaranum meira um það hvað umbunin á réttum tímapunkti er að skila miklu og fljótt.“

Henni finnst ofmetið að reka tryppi í hringtaum. Hún notar hringtauminn annars vegar til að leyfa hlaupaglöðum tryppum að hreyfa sig í byrjun og hins vegar til að kenna ábendingar.

Fóturinn upp. Tryppin eru vanin við vaðinn og læra að lyfta fótum með hans hjálp.
Ljósmynd: Úr einkasafni Ingu Maríu

Traustið byrjar hjá þjálfaranum

Í lok námskeiðs á tryppið að vera óhrætt við reiðtygin og vaðinn. Það á að vera rólegt, kunna að bíða eftir næstu ábendingu og treysta þjálfaranum. Það á að kunna að fara áfram, stoppa og snúa við í hringtaum og byrjað er að teyma það við hlið.

Inga María leggur ekki síður áherslu á það sem þjálfarinn tekur með sér heim. Þar snýr hún algengri hugsun við. „Það er alltaf verið að tala um að tryppið eigi að treysta þjálfaranum en mér finnst hitt eiga að koma á undan. Þú þarft að treysta tryppinu.“ Hún segir þetta gleymast oft í umræðu um þjálfun. Traustið kemur meðal annars í veg fyrir að þjálfarinn haldi alltaf í tryppið eins og það sé að fara á hverri sekúndu. Ef byrjað er á því snemma gengur vinnan alla jafna mjög vel.

Það fer ekki á milli mála að frumtamningar eru henni hjartans mál. „Ég breytist í geysilegan sölumann þegar ég er að sannfæra fólk um hvað það er gaman að frumtemja.“

Smíðaði hringgerðið sjálf

Gott dæmi um það sem getur gerst á átta dögum er Eydís Anna sem var á síðasta námskeiði í Búðardal. Hún var að temja hest fyrir lítinn son sinn. Á fjórða degi var hún komin á bak og á sjötta degi reið hún honum út fyrir hringgerðin á snúrumúl með hálsbandi. Ekki nóg með það heldur hafði hún sjálf smíðað annað hringgerðið sem notað var á námskeiðinu.

Inga María telur að vinsældirnar skýrist meðal annars af því hversu erfitt er orðið að koma tryppum í tamningu. Hún leggur þó áherslu á að frumtamningin sé verðmætasta vinnan með tryppið og að best eigi að borga fyrir góða frumtamningu. Hestamennska og uppihald hrossa sé hins vegar dýrt. Fólk vilji því ef til vill gera sem mest sjálft eða undirbúa tryppin betur til að stytta tímann sem þau eru í tamningu.

Eydís Anna á fullri ferð á námskeiði hjá Ingu Maríu. Hún temur ekki bara hesta heldur smíðar líka hringgerði. Ljósmynd: Úr einkasafni Ingu Maríu

Alls ekki þýðir kannski

Veturinn leggst vel í Ingu Maríu. „Mér finnst ég bara vera forréttindapía sem vinnur við áhugamálið sitt þegar hún nennir,“ segir hún og hlær.

Hún kennir Reiðmanninn á Akranesi í vetur eins og undanfarin tvö ár. Þýskaland og Sviss eru fastir áfangastaðir og það heldur áfram á nýju ári. Hún heldur einnig fyrirlestra um frumtamningar og er með einkakennslu og hópnámskeið.

Inga María segir bjart framundan. Mikil eftirspurn er eftir frumtamninganámskeiðum og einkatímum, bæði hér heima og erlendis. Nú er verkefnið að púsla þessu öllu saman.

Sem stendur er hún ekki með neitt undir hnakk og telur minni líkur á því í vetur. Hún vill þó ekki útiloka neitt og hefur ágæta ástæðu til. „Ég er þekkt fyrir að vera svakalega fljót að breyta öllum plönum. Sérstaklega þegar ég segi alls ekki, þá eru líkurnar orðnar töluverðar.“ Hún sér kostina við það. „Það er mikið frelsi að geta leyft sér að breyta eftir behag.“

Inga María hugsar oft um orð Eyjólfs Ísólfssonar um að það taki 200 ár að verða fullkominn knapi og þjálfari. Hún finnur sjálf að maður batnar með árunum ef líkaminn fær sína þjálfun líka. Samkvæmt þeim útreikningi á hún enn nokkuð í land. Á meðan njóta tryppin og nemendurnir góðs af.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link